Glódís og Cecilía Þýskalandsmeistarar

Glódís Perla Viggósdóttir.
Glódís Perla Viggósdóttir. AFP/Franck Fife

Glódís Perla Viggósdóttir og stöllur hennar í Bayern München tryggðu sér Þýskalandsmeistaratitilinn í dag eftir 2:1 sigur á Bayer Leverkusen, þar sem Karólína Lea Vilhjálmsdóttir spilar.

Glódís Perla, fyrirliði Bayern, var að vana í byrjunarliði og spilaði allan leikinn en hún mun taka á móti bikarnum í næsta heimaleik liðsins sem er 12. maí. Cecilía Rán Rúnarsdóttir er einnig leikmaður Bayern, en hún hefur ekkert leikið á tímabilinu vegna meiðsla. 

Þetta er annað tímabilið í röð sem Bayern vinnur deildina en liðið mætir Wolfsburg á fimmtudaginn í bikarúrslitaleik og geta því unnið tvöfalt í ár.

Karólína Lea var í byrjunarliði Leverkusen og spilaði 79. mínútur í leik dagsins gegn hennar gamla félagi.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert