Spánverjinn Xavi hefur ákveðið að halda áfram sem knattspyrnustjóri Barcelona, en hann gaf það út um áramótin að hann myndi láta af störfum hjá félaginu eftir tímabilið.
Eftir stíf fundarhöld í dag hefur forráðamönnum félagsins tekið að sannfæra miðjumanninn fyrrverandi um að vera áfram með liðið.
Barcelona varð spænskur meistari undir stjórn Xavi á síðustu leiktíð, en gengi liðsins hefur ekki verið eins gott á þessari leiktíð.
Xavi lék 505 deildarleiki með Barcelona frá 1998 til 2015 og er goðsögn hjá félaginu.