Kristiansund tryggði sér í dag sæti í 3. umferð norska bikarsins í fótbolta með útisigri á Træff úr 3. deild, en Kristiansund leikur í þeirri efstu.
Urðu lokatölur í Træff 2:1. Brynjólfur Willumsson lék allan leikinn með Kristiansund og skoraði fyrra mark liðsins er hann jafnaði í 1:1.
Hilmir Rafn Mikaelsson kom inn á sem varamaður á 71. mínútu hjá Kristiansund.