Hrifsuðu bikarinn af Tækniskólanum

Nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, FVA, fögnuðu heldur en …
Nemendur við Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi, FVA, fögnuðu heldur en ekki þegar þeir unnu Framhaldsskólaleikana, FRÍS, þetta árið. Ljósmynd/Rafíþróttasamtök Íslands

Eftir harða baráttu í Kópavogi í gær fögnuðu nemendur í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi því að hafa unnið Framhaldsskólaleikana, FRÍS, þetta árið með glæsibrag.

Nemendur fögnuðu heldur betur þegar þeir hömpuðu bikarnum, sem áður var í höndum Tækniskólans. Bikarinn er farandsbikar og færist því á milli sigurvegara frá ári til árs.

Spilað í beinni útsendingu

Þegar úrslitin voru spiluð hömuðust nemendur í FSU og FVA af miklu kappi til þess að verða sér úti um þennan bikar. Úrslitin þóttu býsna spennandi en þess má geta að FVA áttu 2:1 sigur í bæði CS:GO og Rocket League.

Hægt var að fylgjast með fjörinu í beinni útsendingu á Twitch-rás Rafíþróttasamtaka Íslands en hér fyrir neðan má horfa á endursýningu af útsendingunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert