Vill verða atvinnumaður í hnefaleikum

Rio Ferdinand.
Rio Ferdinand. AFP

Rio Ferdinand, fyrrverandi fyrirliði Manchester United og leikmaður enska landsliðsins, er sagður ætla greina frá því á morgun að hann ætli að reyna að verða atvinnumaður í hnefaleikum.

Ferdinand, sem er 39 ára gamall og lék 81 leik með enska landsliðinu og yfir 300 leiki með Manchester United, er mikill aðdáandi hnefaleika og hann segist hafa varið drjúgum tíma í ræktinni að æfa sig í hnefaleikum til að hreinsa hugann eftir að eiginkona hans og móðir þriggja barna þeirra lést úr brjóstakrabbameini fyrir tveimur árum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert