Gylfi Þór á sínum stað

Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Swansea City.
Gylfi Þór Sigurðsson er í byrjunarliði Swansea City. AFP

Gylfi Þór Sigurðsson er að vanda í byrjunarliði Swansea sem mætir Stoke í ensku úrvaldseildinni klukkan 14.

Gylfi er í þriggja manna framlínu ásamt Fernando Llorente Jordan Ayew. Í marki Stoke er Jack Butland sem spilar þar sinn fyrsta leik í ensku úrvalsdeildinni síðan í mars í fyrra, en hann hefur glímt við afar erfið meiðsli.

Swansea: Fabianski; Naughton, Fernandez, Mawson, Kingsley; Fer, Britton, Carroll; Ayew, Llorente, Gylfi Þór Sigurðsson.

Stoke: Butland; Johnson, Shawcross, M. Indi, Pieters; Shaqiri, Cameron, Allen, Arnautovic; Crouch, Berahino.

Fylgst er með gangi mála í leikjum ensku úrvalsdeildarinnar klukkan 14 HÉR.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert