Adam Ægir Pálsson, leikmaður Vals, og Arnar Grétarsson, þjálfari Hlíðarendaliðsins, fengu báðir rauða spjaldið í byrjun síðari hálfleiks gegn Breiðabliki í Bestu deild karla í fótbolta á mánudagskvöldið.
Besta deildin hefur nú birt upptökur úr búningsklefa Vals þar sem sjá má Adam og Arnar koma inn í klefann eftir að hafa verið vísað af velli.
Tekið er fram að myndavélar hafi verið í búningsherbergjum beggja liða og með samþykki liðanna, en þetta sé nýung sem notast verið við á völdum leikjum í sumar.
Upptökurnar eru birtar á samfélagsmiðlinum X:
Bakvið tjöldin í Bestu deildinni🤝 #bestadeildin pic.twitter.com/KGPxHOLwDP
— Besta deildin (@bestadeildin) May 8, 2024