Leikið á Hlíðarenda og í Árbæ í kvöld

Valur og Fram eigast við á Hlíðarenda klukkan 18.
Valur og Fram eigast við á Hlíðarenda klukkan 18. mbl.is/Óttar Geirsson

Fjórðu umferðinni í Bestu deild karla lýkur í kvöld með tveimur leikjum, annar fer fram á Hlíðarenda en hinn í Árbænum.

Valsmenn fá Framara í heimsókn á Hlíðarenda og viðureign liðanna hefst klukkan 18 en henni var flýtt þar sem körfuboltaleikur Vals og Njarðvíkur fer einnig fram í kvöld og hefst klukkan 20.15.

Framarar mæta til leiks fyrir ofan Val á töflunni en Fram er í fimmta sæti með sex stig eftir fyrstu þrjá leikina og Valur er með fjögur stig í áttunda sætinu.

Í Árbænum verður flautað til leiks hjá Fylki og Stjörnunni klukkan 19.15. Stjarnan er með þrjú stig og Fylkir eitt en liðin sitja í níunda og ellefta sæti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert