Fram, Fylkir og Vestri unnu öll sína leiki í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í knattspyrnu.
Vestri vann Hauka í sex marka leik í Hafnarfirðinum, 4:2. Mörk Vestra skoruðu Pétur Bjarnason, Toby King, Friðrik Þórir Hjaltason og Ívar Breki Helgason.
Mörk Hauka skoruðu Magnús Ingi Halldórsson og Djordje Biberdzic.
Fram vann þá Árbæ, 3:0, á velli Þróttar R. í Laugardalnum.
Mörk Framara skoruðu Aron Snær Ingason, Magnús Þórðarson og Egill Otti Vilhjálmsson en Ástþór Ingi Runólfsson fékk rautt spjald í liði Árbæjar.
Ómar Björn Stefánsson skoraði þá sigurmarkið er Fylkir vann Hött/Huginn, 1:0, á Egilsstöðum.
Unnu þar með öll Bestu deildarliðin sína leiki og halda áfram í 16-liða úrslitin.