Svona lítur hún út í dag

Melanie Griffith var eitt sinn gift hjartaknúsaranum Antonio Banderas.
Melanie Griffith var eitt sinn gift hjartaknúsaranum Antonio Banderas. AFP

Lítið hefur heyrst til Melanie Griffith að undanförnu en ferill hennar hefur tekið ýmsar dýfur í gegnum tíðina. Þá hafa einnig misheppnuð hjónabönd tekið sinn toll af hinni 65 ára leikkonu.

Fyrst var hún gift Don Johnson en svo kynntist hún spænska leikaranum Antonio Banderas og þau áttu í miklu ástarævintýri í um tvo áratugi eða til ársins 2014. Griffith hefur sagt í viðtali að hún upplifði sig fasta í sambandinu og þess vegna hefði hjónaband þeirra liðaðst í sundur. „Ég var bara föst. Það var engum nema mér að kenna og ég læt það ekki gerast aftur,“ sagði Griffith í viðtali.

Útlit Griffith hefur oft verið á milli tannana á fólki en hún þykir hafa farið ansi frjálslega með fegrunaraðgerðir. Í viðtali við tímaritið Porter árið 2017 viðurkennir hún að hafa ef til vill gengið of langt á tímabili í lýtaaðgerðum. „Ég áttaði mig ekki á hversu slæmt þetta var fyrr en fólk var farið að segja „Almáttugur, hvað hefur hún gert við andlitið á sér?“. Þá fór ég til annars læknis og hann fór að leysa upp alls konar sem hinn læknirinn hafði gert. Vonandi lít ég eðlilegar út í dag.“

Melanie Griffith ber aldurinn með prýði og skartar nýrri hárgreiðslu …
Melanie Griffith ber aldurinn með prýði og skartar nýrri hárgreiðslu sem fer henni afar vel. AFP
Melanie Griffith ásamt Jamie Lee Curtis og Arnold Schwarzenegger.
Melanie Griffith ásamt Jamie Lee Curtis og Arnold Schwarzenegger. AFP



View this post on Instagram

A post shared by MELANIE (@melaniegriffith)

Melanie Griffith og Arnold Schwarzenegger sáust saman á dögunum.
Melanie Griffith og Arnold Schwarzenegger sáust saman á dögunum. AFP
Leikkonurnar Kyle Richards og Melanie Griffith við frumsýningu myndarinnar
Leikkonurnar Kyle Richards og Melanie Griffith við frumsýningu myndarinnar "Halloween Ends". AFP
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál