Í tilefni komandi forsetakosninga ákvað Smartland að skyggnast á bak við tjöldin og spyrja forsetaframbjóðendur spjörunum úr. Forvitnast um það sem fáir vita en allir ættu hins vegar að vita.
Fimm spurningar fyrir forsetaframbjóðendur: Jón Gnarr
Fyrsti kossinn?
„Það var stúlka sem kyssti mig á kinnina þegar ég var 13 ára gamall og kossinn var áþreifanlegur í marga klukkutíma eftir á og tilfinningin ógleymanleg.“
Hvaða plaköt prýddu veggi herbergis þíns á unglingsárunum?
„Aðallega pönk-plaköt, eins og stór mynd af Ninu Hagen.“
Fyrstu tónleikarnir?
„Fyrstu tónleikarnir voru Melarokk árið 1982.“
Uppáhaldsárstíð?
„Vorið. Enginn elskar vorið jafnmikið og ég. Þá vaknar lífið úr dvala og plönturnar mínar byrja að taka við sér. Ég elska plönturnar mínar eins mikið og börnin mín.“
Botnaðu setninguna: Minn forseti er:
„Minn forseti er heiðarlegur, hugrakkur, góður ræðumaður en frábær hlustandi. Húmoristi sem kemur reglulega og skemmtilega á óvart.“