„Í hvaða ævintýri er ég“

Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er kallaður, hætti …
Sigvaldi Kaldalóns, eða Svali eins og hann er kallaður, hætti á K100 og flutti til Tenerife. mbl.is/Golli/Kjartan Þorbjörnsson

Þegar við lögðum af stað í þetta ferðalag var ekki klárt hvað við myndum gera hér úti. Það var í raun ekki fyrr en í desember sem komst einhver mynd á það. Ég fékk starf hjá Vita og á að byrja þar í vor, einhvertímann í mai. Svona fyrst um sinn hugsaði ég, já flott ég get þá bara slakað á þangað til og notið lífsins. Ég er gjarn á að gleyma hvernig ég er, að slaka á í 5 mánuði er bara engan veginn gerlegt,“ segir Svali í sínum nýjasta pistli en hann skrifar frá Tenerife:

Ég fór því fljótlega, um það bil þrem vikum eftir að út var komið, að kanna gönguleiðir og spá í að fara með Íslendinga á eyjunni í göngur. Ætla svo að bæta við hjólaferðum og koma fólki upp á lagið með að hlaupa í fjöllunum hér. Ég fór að nota snappið mitt (svalik) til að segja fólki frá og sýna hvað ég var að gera og boom. Nú þarf herra óskipulagður að fara að verða skipulagður. Það er skemmst frá því að segja að ég gæti gengið, hjólað eða hlaupið á hverjum einasta degi með þá Íslendinga sem eru hér. Ég vissi að það þyrfti að bæta þjónustu við Íslendinga hér því þeir eru frá 600 til 1000 í hverri viku á svæðinu, en mamma mía hvað þetta er magnað. Þannig að núna næstu tvær vikurnar verð ég á fullu í að „mappa“ leiðir fyrir þá sem vilja fara að skrölta með mér. Fer í vikunni að semja við mikinn meistara sem er að leigja kajaka á ströndinni í Los Cristianos og verð með vikulega ferð þar sem hægt er að sigla með höfrungum og snorkla með skjaldbökum. Ég var að búa til Facebook síðu sem heitir „Svali á Tenerife“ þar er hægt að senda mér fyrirspurnir um hreyfiferðir og bóka tíma.

Á föstudögum þramma ég í kringum El Chinyero sem er síðasta eldfjall sem gaus á eyjunni, 1909, og sunndögum eyði ég svo í Masca eins og staðan er í dag. Hinir dagarnir fara í að búa til nýjar ferðir fyrir þá sem eru á leiðinni hingað.  Í hvaða ævintýri er ég, er hugsun kemur oft þegar ég leggst á koddann. 

Af því að ég er oft spurður út flutninginn og allt það, þá er það þannig að ef þig langar að flytja út þá þarftu bara að taka ákvörðun fyrst. Svo kemur allt hitt, vinna, skóli, húsnæði og allt í þeim dúr. Bara að taka ákvörðun. 

En annars er það að frétta af okkur að allt gengur sinn vana gang, strákarnir farnir að skilja meira og meira í spænskunni en okkur var vinsamlega bent á það á foreldrafundi að við þyrftum að einbeita okkur mun meira að spænskunni og fá okkur kennara heim. Það er planið núna semsagt að dýfa sér í spænskuna af meiri krafti. En maður vill stundum gleyma því að það eru bara tveir mánuðir liðnir og ósköp skiljanlegt að maður sé ekki altalandi ennþá. 

Bestu kveðjur frá okkur.

SnapChat: svalik 

Insta: svalikaldalons

Facebook: Svali á Tenerife

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál