Vildi vita hvar öll húsin hans Sigvalda voru

Loji Höskuldsson hefur mikinn áhuga á verkum Sigvalda Thordarsonar arkitekts.
Loji Höskuldsson hefur mikinn áhuga á verkum Sigvalda Thordarsonar arkitekts. mbl.is/Ólafur Daði Eggertsson

Myndlistarmaðurinn og tónlistarmaðurinn Logi Höskuldsson eða Loji eins og hann kýs að kalla sig er mikill áhugamaður um Sigvalda Thordarson arkitekt. Loji heldur úti skemmtilegri Instagram-síðu þar sem hann fjallar um Sigvaldahúsin. Loji valdi 11 hús fyrir Smartland sem eru í sem mestu uppáhaldi og svaraði því hvaðan áhuginn kæmi. 

Hvernig fékkstu áhuga á Sigvaldahúsunum?

Fyrstu 10 árin mín ólst ég upp í Álftamýri og þar í kring í Háaleitishverfinu eru nokkur hús sem máluð eru í Sigvaldalitum. Það var eitthvað við litina sem fangaði athygli mína og ég fór því að hjóla á milli húsanna til að velta litum og formum fyrir mér. Án þess að vita nokkuð um hvernig hús verða til.

Svo flyt ég í annað hverfi, Voga- og Heimahverfi, og þar er að finna svipuð form og liti í húsunum. Þannig að einhver hlaut að standa á bak við þessi hús. Ég var orðinn aðeins eldri og farinn að spyrja aðeins dýpri spurninga þannig að á endanum kemst ég að því hver það var sem teiknaði þessi hús.

Á unglingsárunum átti ég mér þann draum heitastan að vita hvar öll húsin hans Sigvalda væru en því miður var bara ekkert til neitt skrifað um hann. Þegar maður leitaði að honum á netinu fann maður ekki neitt. Þannig að á ferðalögum mínum um Reykjavík og nágrenni þá var ég svolítið að giska á hvaða hús væru eftir hann.

Það að vita ekki neitt og geta ekki fundið neitt um Sigvalda neins staðar kveikti enn þá meiri neista í mér. Þessi þörf að vita meira dró mig áfram og núna með hjálp frá alls konar fólki hef ég náð að staðsetja held ég flest hús sem Sigvaldi hefur komið að. Instagrammið mitt er eins konar archive af verkunum hans og ég læt oft fylgja einhverjar vangaveltur um hvert hús fyrir sig.

Hver eru helstu einkenni Sigvaldahúsa?

Útlitslega fer það eftir hverju tímabili fyrir sig, til dæmis Sigvaldalitir, blár okkurgulur og beinhvítt. Svo eru það skáþökin sem hann fékk svo greinilega leið á þegar það fór að síga á seinni hlutann og þá tóku við bein þök. En ég held að öll eigi það nú sameiginlegt að vera mjög vel skipulögð og fólki líður mjög vel í þeim. 

Hér koma húsin 11 í engri sérstakri röð

Ægisíða 80

Gömul mynd af Ægisíðu 80.
Gömul mynd af Ægisíðu 80. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Ægisíða 80 er talið vera eitt af meistaratykkjum Sigvalda, teiknað árið 1956 fyrir Othar Ellingsen. Þegar þetta hús var friðað 1999 var þetta yngsta húsið á Íslandi til þess að vera friðað.

Bakkastígur 1

Bakkastígur 1.
Bakkastígur 1. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Æðisleg viðbygging, svolítið djarfur kokteill sem Sigvaldi reiðir hér fram, módernisma blandað við sveitserstíl og útkoman finnst mér ansi eitruð.


Háaleitisbraut 109-111

Háaleitisbraut 109-111.
Háaleitisbraut 109-111. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Mér hefur alltaf fundist þessi blokk sérstök. Fyrst fannst mér hún herfileg en svo eldist maður og þroskast, þá fannst mér hún verða athyglsverð. Svo kviknaði áhugi minn á Sigvalda á menntaskólaaldrinum og þá var ekki aftur snúið!


Melabraut 30

Melabraut 30.
Melabraut 30. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Á Seltjarnarnesi er fallegasta hús sem hús sem Sigvaldi hefur teiknað að mínu mati. Þetta hús ber öll höfundareinkenni Sigvalda, Sigvaldalitir, skáþak og grjóthleðsluvegg sem hann fiktaði stundum við.


Búðareyri 5

Búðareyri 5.
Búðareyri 5. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Þetta er eiginlega mitt uppáhalds Sigvaldahús, svo margt furðulegt við það.
Húsið er teiknað árið 1953 fyrir Kristján Ólason klæðskera á Reyðarfirði. Takið eftir glugganum á hliðinni og eitt af fáum timburhúsum eftir Sigvalda sem ég veit um!

Selás 8

Selás 8.
Selás 8. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Á Egilsstöðum er hægt að finna þetta hús, eitt af nokkrum rafstjórahúsum sem Sigvaldi teiknaði fyrir Rarik á sínum tíma. Tignarleg höll fyrir mann í embætti, öllu tjaldað til. Sigvaldalitir, beint þak, skrýtin gluggaskipan sem ég samt dýrka alveg út af lífinu.

Skildinganes 23

Skildinganes 23.
Skildinganes 23. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Vá ég veit ekki hvar ég á að byrja að lýsa þessu húsi, algjör Sigvaldi Thordarson á sterum, eitt af mínum allra uppáhalds.

Kleifarvegur 3

Kleifarvegur 3.
Kleifarvegur 3. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Fólk heldur eflaust að ég sé staddur í svissnesku fjallaþorpi en svo er ekki, ég er staddur ofarlega í hlíð í 104 Reykjavík. Húsið minnir óneitanlega á hús í sveitasælu einhvers staðar í Ölpunum og mér finnst bitarnir í þakinu sem skjótast þarna fram ansi fallegir.

Sumarbústaður við Selvatn

Sumarbústaður við Selvatn.
Sumarbústaður við Selvatn. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Rétt fyrir utan Reykjavík er draumasumarbústaðurinn minn, teiknaður árið 1952 fyrir Othar Ellingsen.

Kvisthagi 13

Kvisthagi 13.
Kvisthagi 13. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Í þessu húsi í Vesturbænum bjuggu listahjónin Sveinn Þórarinsson málari og Karen Agnete Þórarinsson listmálari. Algjört tímamótahús hjá Sigvalda teiknað árið 1949 það sker sig frá öllu öðru sem hann hafði verið að fást við á þessum tíma.

Reiðhjallavirkjun

Reiðhjallavirkjun.
Reiðhjallavirkjun. skjáskot/Instagram.com/lojiho

Til hvers að teikna eitthvað svona fallegt sem á ekki að hýsa eitthvert líf heldur eintómar vélar og hávaða? Byggingin er algjör perla í botni dalsins, þetta afskekkta en afar fallega hús setur stórt spurningarmerki við tilgang fegurðar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál