Vegur aðeins 45 kíló

Mæðgurnar Sharon og Kelly Osbourne hafa báðar viðurkennt að hafa …
Mæðgurnar Sharon og Kelly Osbourne hafa báðar viðurkennt að hafa leitað sér læknisaðstoðar til að grennast. Samsett mynd

Sjónvarpskonan Sharon Osbourne viðurkenndi í sjónvarpsviðtali á dögunum að hafa misnotað sykursýkislyfið Ozempic. Fyrrverandi þáttastýran hefur misst tæplega 15 kíló á innan við fjórum mánuðum og vegur í dag aðeins 45 kíló. 

Osbourne, sem er gift eilífðarrokkaranum Ozzy Osbourne, var gestur í spjallþætti Piers Morgan ásamt eiginmanni sínum og tveimur börnum, og ræddi meðal annars um þyngdartap sitt. Hún sagðist hafa nýtt sér „auðveldu leiðina“ til að losna við „aukakílóin“ og viðurkenndi einnig að hafa farið of langt. 

Mörgum brá í brún yfir breyttu útliti Osbourne, en andlit hennar var beinabert og náfölt. 

Sjónvarpskonan er ein af mörg­um Hollywood-stjörn­um sem hafa viður­kennt að hafa not­fært sér lyfið til að grenn­ast hratt. Amy Schumer, Tracy Morgan og Chel­sea Handler hafa öll játað að hafa nýtt sér grenn­ing­ar­mátt lyfs­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál