Sara Piana sækir um skilnað við Chris Miller

Sara Piana hefur sótt um skilnað.
Sara Piana hefur sótt um skilnað. mbl.is/Kristinn Magnússon
Íslenska líkamsræktarstjarnan Sara Piana, sem skaust upp á stjörnuhimininn þegar hún giftist Rich Piana heitnum á sínum tíma, hefur sótt um skilnað við eiginmann númer tvö, Chris Miller. Hún greinir frá þessu í viðtali við DV.is. 

„Ég sótti um skilnað og er það í ferli. Þetta var ekki að ganga upp, mikið af erfiðleikum því miður,“ segir Sara í samtali við DV. 

„Ég reyndi allt en það gengur ekki að önnur manneskjan sé að leggja allt á sig og hin ekki. Hlutum var lofað og ekki staðið við og síðan vildi hann ekki búa á Íslandi. Þetta er allavega fullreynt á minni hálfu. Hann er ekki lengur á landinu. Þetta er auðvitað mjög sorglegt en ég er ekki tilbúin að vera óhamingjusöm eftir allt sem ég er búin að þurfa ganga í gegnum.“

Sara og Miller hnutu um hvort annað 2016 en hún bjó lengi í Bandaríkjunum. Hún flutti hinsvegar heim til Íslands 2020 og í fyrra gengu þau í hjónaband. Sara stundar nám við háskólann á Bifröst þar sem hún lærir viðskiptafræði. 

Smartland óskar Söru góðs gengis í verkefnum lífsins! 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert

Spurt og svarað

húðlæknir á Húðlæknastöðinni svarar spurningum lesenda

sálfræðingur á Sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda

einstaklings- og fjölskylduráðgjafi svarar spurningum lesenda

Klínískur félagsráðgjafi hjá Lausninni

hjúkrunar- og kynfræðingur svarar spurningum lesenda

svarar spurningum um lögfræðileg mál