Jólalambið sem toppar jólaveisluna

Ljósmynd/Íslenskt lambakjöt

Jóla innralæri með ofnbökuðu grænmeti, fennel- gulróta hrásalati og rifsberjasósu

Steikt innralæri

  • 2 innralæri
  • olía
  • 1 tsk. fennel fræ
  • 1/2 tsk. dillfræ
  • salt og pipar

Ofnbakað grænmeti

  • 8 gulrætur
  • 2 nípur, skornar í fernt
  • 8 skarlottulaukar, skrældir  
  • 1 box Flúðasveppir  
  • 1 l lambasoð
  • ólífuolía
  • 6 greinar ferskt timían  
  • 2 heilir hvítlaukar skornir í tvennt  
  • 1 stk. kanilstöng

Rifsberjasósa

  • Soðið úr ofnskúffunni
  • 50 g smjör
  • 50 g hveiti  
  • 100 ml rjómi  
  • 50 g rifsber

Fennel og gulrótahrásalat

  • 6 stk. gulrætur
  • 2 fennel
  • 2 græn epli
  • 2 appelsínur
  • 1/2 búnt dill
  • 40 ml góð ólífuolía
  • sítrónusafi

Leiðbeiningar

Ofnbakað grænmeti

Byrið á að skera grænmetið og raðið í ofnskúffu, kryddið með salti og pipar. Hellið soðinu yfir. Athugið að lambið fer með grænmetinu í ofninn.

Steikt innralæri

Hitið ofninn í 120°C. Saltið innralærin og brúnið á vel heitri pönnu í 2-3 mín á hvorri hlið. Nuddið kryddinu á kjötið og piprið. Setjið kjötið ofan á rótargrænmetið í bakkanum og inn í ofn í um 40 mín. Eða þar til kjarnhitinn nær 60°C.

Rifsberjasósa

Gerið smjörbollu úr smjöri og hveiti, smjörið er brætt í potti og hveitinu hrært saman við með sleif. Hrærið áfram yfir miðlungs hita í 2 mín og kælið svo. Sigtið soðið úr ofnskúffunni í pott og hitið að suðu, blandið kaldri smjörbollunni saman við með písk, sjóðið í 15 mín og hrærið reglulega. Bætið rjóma við og smakkið til með salti og pipar, rifsberin fara í rétt áður en sósan er borin fram.

Fennel og gulrótahrásalat

Skerið gulrætur, fennel og epli í þunna strimla og setjið í skál. Skrælið appelsínu og skerið í báta, pillið dilltoppana af stilkum. Blandið öllu saman og smakkið til með sítrónusafa og salti.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert