Litur ársins lokkandi saltblár með perluáferð

Fyrsti litur ársins hjá KitchenAid er saltblár, lillablár litur með …
Fyrsti litur ársins hjá KitchenAid er saltblár, lillablár litur með hárfínum litaskiptum, rauðleitri perluáferð sem skiptir mjúklega litatónum eftir því hvar ljósið lendir á litnum. Ljósmynd/KitchenAid

Þann 8. febrúar síðastliðinn afhjúpaði KitchenAid lit ársins 2024. Liturinn heitir „Blue Salt. Blue Salt“ eða Saltblár. saltblái liturinn er lillablár litur með hárfínum litaskiptum, rauðleitri perluáferð sem skiptir mjúklega litatónum eftir því hvar ljósið lendir á litnum. Þetta er ljóslifandi litur sem er vís til þess að brjótast út úr eintóna tilbreytingarleysi eldhússins. Liturinn er nú fáanlegur á Artisan hrærivélinni, saltblár er síbreytilegur litur sem endurspeglar fjölhæfnina sem hlutverk eldhússins spilar í lífi okkar allra á hverjum degi.

Þetta er ljóslifandi litur sem er vís til þess að …
Þetta er ljóslifandi litur sem er vís til þess að brjótast út úr eintóna tilbreytingarleysi eldhússins. Ljósmynd/KitchenAid

Ný áferð og nýr litatón

„Við erum virkilega spennt að kynna KitchenAid lit ársins 2024 og hefur mikil stemning myndast hér innanhúss fyrir þessum lit. Bæði er þetta ný áferð sem við höfum ekki séð áður en einnig kveður við nýjan tón hjá KitchenAid með þessum kaldari og kannski sem kalla má norrænni lit, en litir ársins hafa hingað til verið frekar suðrænir, heitir og djarfir litir. Saltblár er því spennandi viðbót í litaflóru KitchenAid sem við teljum að muni höfða enn betur til okkar hér á Norðurlöndunum,“ segir Dísa Sigurðardóttir í markaðsdeild Heimilistækja.

Leitast við að skapa magnaða eldhúsupplifun

KitchenAid leitast eftir því að skapa magnaða eldhúsupplifun og það byrjar gjarnan með lit og hönnun vörunum þeirra. Litur ársins 2024 bregður ekki út af vananum að því leitinu til, en hann er fyrsti liturinn hjá þeim sem hefur þessa einstöku perluáferð að sögn Chad Reis, markaðs- og vörumerkjastjóra hjá KitchenAid. „Innblásinn af því hvernig klípa af salti opnar skilningarvitin og gerir þau móttækilegri við bragðdýptinni, Saltblár er skynáminning um að líta hvern dag í nýju ljósi," bætir Reis við.

Kaldur og fallegur litatón.
Kaldur og fallegur litatón. Ljósmynd/KitchenAid

Fyrsti hrærivélaliturinn var kynntur árið 1955

Saltblár er sá sjötti í röð KitchenAid lita ársins. KitchenAid hafa verið í forystu fyrir mætti litarins sem drifkrafti til sköpunar frá því að þeir tilkynntu fyrstu hrærivélalitina árið 1955. Í dag velur vörumerkið lit ársins í takt við strauma og stefnumótun á heimsmælikvarða og sem hvatningu til þess að fanga augnablikið í núinu og veita sköpurum heimsins innblástur.

Upprisa kaldra lita á ný

Haft er eftir Brittni Pertijs sem er lit, áferðar og efnisstjóra hjá Whirlpool að vinna hafi hafist við KitchenAid lit ársins 2024 með gagnasöfnun snemma á árinu 2021. „Hlýir tónar líkt og tveir síðustu KitchenAid litir ársins, Beetroot og Hibiscus, hafa verið svo afgerandi djarfir að við sáum fyrir okkur upprisu kaldari lita á ný. Við vildum að litur ársins 2024 endurspeglaði fjölbreytni litatóna og skynjunar sem finna má í náttúrunni, eins og í loftinu eða sjónum,“ segir Pertijis.

Artisan hrærivélin í litnum Saltblár er væntanleg til helstu söluaðila KitchenAid á Íslandi með vorinu. Hægt er að fá fréttir af öllu því helsta frá KitchenAid á Íslandi hér og á Instagram-síðu þeirra hér.

Ljósmynd/KitchenAid
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert