Forsetahjónin Guðni og Eliza fögnuðu með kokkalandsliðinu

Heimkomu íslenska kokkalandsliðsins var ákaft fangaði í höfuðstöðvum Expert í …
Heimkomu íslenska kokkalandsliðsins var ákaft fangaði í höfuðstöðvum Expert í gær. Forsetahjónin tóku móti liðiðnu ásamt fjölda gesta og velunnara. Samsett mynd/Bent Marinósson

Íslenska kokkalandsliðið lauk í vikunni frábæru móti á Ólympíuleikunum í matreiðslu í Stuttgart þar sem liðið hafnaði í þriðja sæti. Heimkomu bronsverðlaunahafana var ríkulega fagnað í höfuðstöðvum Expert að Höfðabakka 7 í gær en fyrirtækið er einn af aðalstyrktaraðilum kokkalandsliðsins. Starfsmenn og sérfræðingar Expert tóku vel á móti liðinu ásamt góðum gestum m.a. forsetahjónunum.

Stórsigur út af fyrir sig

,,Við erum í skýjunum með þennan árangur. Þetta er stórsigur út af fyrir sig. Það munaði ótrúlega litlu á efsta sæti og því þriðja. Þannig að það munaði í raun mjög litlu að við yrðum Ólympíumeistarar. En við erum gríðarlega ánægð með að ná bronsinu á sjálfum Ólympíuleikunum. Við náðum tveimur gullmedalíum sem er frábær árangur," segir Snædís Jónsdóttir, þjálfari kokkalandsliðsins.

Þetta er í annað skiptið sem Ísland lendir í þriðja sæti á Ólympíuleikum og segir Snædís að það hafi verið frábært að ná að komast aftur á verðlaunapallinn á leikunum.

Þetta er samt sem áður besti árangur íslenska kokkalandsliðsins i sögunni stigalega séð þótt landsliðið hafi áður náð 3. Sæti enda munaði ekki nema 0,1 á öðru og þriðja sæti.

Hér má sjá móttökurnar sem liðið fékk við komuna:

Afar ánægjulegt að sjá forsetahjónin 

,,Þetta voru frábærar móttökur sem við fengum í höfuðstöðvum Expert. Það var afar ánægjulegt að sjá Guðna Th. Jóhannesson forseta og forsetafrúnna Elizu Reid, en hún er verndari kokkalandsliðsins, auk fleiri góðra gesta. Við erum þakklát fyrir þessar höfðingjalegu móttökur," segir hún.

Næsta stóra mót er heimsmeistaramótið í Lúxemborg árið 2026 og segir Snædís að það sé nánast hægt að byrja að hlakka HM til miðað við frammistöðuna á Ólympíuleikunum nú. ,,Við eigum frábært kokkalandslið og við förum full sjálfstrausts á heimsmeistaramótið," segir Snædís enn fremur. 

,,Það var mjög ánægjulegt og mikill heiður að taka á móti kokkalandsliðinu eftir frábæra frammistöðu þess á Ólympíuleikunum. Íslendingar geta verið mjög stoltir af liðinu enda frábærir kokkar sem við eigum," Ástrós Kristinsdóttir, markaðsstjóri Expert.

Hér má sjá svipmyndir frá gleðinni í gær:

Kokkalandsliðið fékk höfðinglegar móttökur í höfuðstöðvum Expert að Höfðabakka 7 …
Kokkalandsliðið fékk höfðinglegar móttökur í höfuðstöðvum Expert að Höfðabakka 7 í gær. Landsliðið skipar eftirfarandi liðsmönnum Mariu Shramko, Snædísi Xyza Mae Jónsdóttur, þjálfara, Ólöfu Ólafsdóttur, Kristínu Birtu Ólafsdóttur, Huga R. Stefánssyni, Ísaki Aroni Jóhannssyni, Gabríel Kr. Bjarnasyni, Jafeti Bergmann Viðarssyni, Erlu Þóru Bergmann, Bjarka Snæ Þorsteinssyni og Úlfari E. Úlfarssyni. Ljósmynd/Bent Marinósson
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid taka á móti …
Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid taka á móti landsliðsfyrirliðanum Ísaki Aroni Jóhannssyni við heimkomuna. Ljósmynd/Bent Marinósson
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara ásamt Snædísi þjálfara íslenska kokkalandsliðsins.
Þórir Erlingsson forseti Klúbbs matreiðslumeistara ásamt Snædísi þjálfara íslenska kokkalandsliðsins. Ljósmynd/Bent Marinósson
Þórir forseti Klúbbs matreiðslumeistara ásamt starfsmönnum Expert þeim Hirti, Gísla …
Þórir forseti Klúbbs matreiðslumeistara ásamt starfsmönnum Expert þeim Hirti, Gísla og Ara. Ljósmynd/Bent Marinósson
Stemningin var mikil í höfuðstöðvum Expert í gær.
Stemningin var mikil í höfuðstöðvum Expert í gær. Ljósmynd/Bent Marinósson
Guðni með bronsið.
Guðni með bronsið. Ljósmynd/Bent Marinósson
Sindri Guðbrandur Sigurðsson Kokkur ársins 2023 og keppandi í Bocuse …
Sindri Guðbrandur Sigurðsson Kokkur ársins 2023 og keppandi í Bocuse d'Or 2025 ásamt liðinu sínu að fagna með kokkalandsliðinu.
Fjöldi gesta tók á móti landsliðinu.
Fjöldi gesta tók á móti landsliðinu. Ljósmynd/Bent Marinósson
Arnar Bjarnason framkvæmdastjóri Fastus og Gabríel Kristinn Bjarnason andsliðsmaður og …
Arnar Bjarnason framkvæmdastjóri Fastus og Gabríel Kristinn Bjarnason andsliðsmaður og starfsmaður Expert. Ljósmynd/Bent Marinósson
Bjarki Snær Þorsteinsson landsliðsmaður ásamt barninu sínu.
Bjarki Snær Þorsteinsson landsliðsmaður ásamt barninu sínu. Ljósmynd/Bent Marinósson
Fagnað með forsetahjónunum.
Fagnað með forsetahjónunum. Ljósmynd/Bent Marinósson
Ólöf Ólafsdóttir með son Snædísar þjálfara kokkalandsliðsins.
Ólöf Ólafsdóttir með son Snædísar þjálfara kokkalandsliðsins. Ljósmynd/Bent Marinósson
Ísak Aron, Ólöf, Snædís, Sjöfn Þórðardóttir, Guðni Th. Jóhannesson og …
Ísak Aron, Ólöf, Snædís, Sjöfn Þórðardóttir, Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid fagna saman árangri liðsins. Ljósmynd/Bent Marinósson
Ísak, Hugi og Snædís ásamt syni sínum sem fagnaði ákaft …
Ísak, Hugi og Snædís ásamt syni sínum sem fagnaði ákaft að fá móður sína heim. Ljósmynd/Bent Marinósson
Úlfar, Maria og Ólöf glaðbeitt.
Úlfar, Maria og Ólöf glaðbeitt. Ljósmynd/Bent Marinósson
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson í góðum félagsskap …
Forsetahjónin Eliza Reid og Guðni Th. Jóhannesson í góðum félagsskap með Þóri. Ljósmynd/Bent Marinósson
Guðni bregður á leik með Ísaki Aroni.
Guðni bregður á leik með Ísaki Aroni. Ljósmynd/Bent Marinósson
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert