Vatnsdeigsbollur með Rice Krispies-miðju

Einn ástsælasti matarbloggarinn okkar er búin að fullkomna vatnsdeigsbollur með …
Einn ástsælasti matarbloggarinn okkar er búin að fullkomna vatnsdeigsbollur með bananarjóma og súkkaðihúðuðu Rice Krispies sem slær öll met. Samsett mynd

Hver man ekki eftir Rice Krispies köku með bananarjóma og karamellu? Auðvitað er snillingurinn, hún Berglind Hreiðars, einn ástsælasti matar- og kökubloggari landsins búin að setja þá köku inn í vatnsdeigsbollu sem slær öll met.

Berglind deildi með fylgjendum sínum á Instagram-síðu sinni aðferðinni og freistaði þeirra með þessari dýrð. 

Eins og Berglind nefnir má útbúa sjálfur vatnsdeigsbollur eða hreinlega kaupa þær tilbúnar og setja þetta saman.

Það er einnig hægt að fá tilbúna þykka karamellusósu víða og með því getið þið stytt ykkur enn frekar leið að þessari dásemd. Samt er ákveðin stemning að gera þetta sjálfur og líka hafa sitt handbragð á góðgætinu.

Þessar vatnsdeigsbollur eru algjört sælgæti.
Þessar vatnsdeigsbollur eru algjört sælgæti. Ljósmynd/Berglind Hreiðars

Vatnsdeigsbollur með Rice Krispies-miðju

Um 15 stykki

Vatnsdeigsbollur

  • 360 ml vatn
  • 180 g smjör
  • 200 g hveiti
  • 1 tsk. lyftiduft
  • ¼ tsk. salt
  • 3 egg (160 g)

Aðferð:

  1. Hitið ofninn í 180°C.
  2. Blandið hveiti, lyftidufti og salti saman í skál og leggið til hliðar.
  3. Pískið eggin í skál, vigtið og geymið. Ef eggin eru lítil gæti þurft aðeins meira en 3 egg.
  4. Hitið vatn og smjör saman í potti þar til smjörið bráðnar og leyfið aðeins að sjóða, slökkvið þá á hellunni.
  5. Setjið þurrefnin saman við og hrærið vel þar til „smjörbolla“ myndast.
  6. Færið þá deigið yfir í hrærivélarskálina og hrærið rólega með K-inu þar til mesti hitinn er farinn út því.
  7. Bætið þá eggjunum saman við í nokkrum skömmtum og hrærið áfram saman.
  8. Setjið þá kúfaða matskeið á bökunarpappír fyrir hverja bollu (ég notaði litla ísskeið) og bakið í 30-35 mínútur eða þar til bollurnar verða vel gylltar. Alls ekki opna ofninn til að kíkja á þær/botninn fyrr en í fyrsta lagi eftir 25 mínútur því þá eru meiri líkur á því að þær falli.
  9. Leyfið bollunum að kólna, skerið þær í sundur og hefjist handa við fyllingarnar (sjá hér að neðan).

Rice Krispies miðja

  • 150 g Síríus suðusúkkulaði
  • 40 g smjör
  • 150 g síróp (í grænu flöskunni)
  • 100 g Rice Krispies

Aðferð:

  1. Hitið Síríus suðusúkkulaði, smjör og síróp saman í potti þar til bráðið, leyfið að bubbla í smá stund og slökkvið síðan á hellunni og leyfið hitanum aðeins að rjúka úr blöndunni.
  2. Blandið Rice Krispies næst saman við og setjið síðan væna matskeið af hrísblöndu ofan á neðri helminginn á hverri bollu.

Banana rjómafylling

  • 400 ml rjómi
  • 1 stór banani (eða 2 minni)

Aðferð:

  1. Þeytið rjómann og skerið banana í litla bita, vefjið þeim saman við rjómann með sleikju.
  2. Setjið vel af bananarjóma ofan hrískökumiðjuna og lokið bollunni þá með efri hlutanum og setjið karamellu + Síríus karamellukurl ofan á (sjá uppskrift að neðan).

Karamella og skraut

  • 150 g sykur
  • 60 g smjör við stofuhita
  • 80 ml rjómi
  • ½ tsk. salt
  • Síríus karamellukurl

Aðferð:

  1. Bræðið sykurinn á pönnu, bætið smjörinu saman við og hrærið vel þar til bráðið og búbblar.
  2. Hellið þá rjómanum saman við, hrærið áfram vel og leyfið að sjóða saman í um hálfa mínútu, slökkvið þá á hellunni, bætið saltinu saman við og hellið karamellunni yfir í skál. Leyfið henni að ná stofuhita, við það þykknar hún.
  3. Setjið kúfaða teskeið af karamellu á hverja bollu og stráið síðan Síríus karamellukurli yfir til skrauts.
  4. Ef karamellan bíður lengi og verður of þykk hjá ykkur þá má setja hana í örbylgjuofn í um 15 sekúndur á meðallágum hita og hræra hana upp aftur.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert