Uppáhaldspítsan hennar Lindu Ben

Uppáhaldspítsan hennar Lindu Ben er með skinku, pepperoní, sveppum, ólífum, …
Uppáhaldspítsan hennar Lindu Ben er með skinku, pepperoní, sveppum, ólífum, döðlum, rjómaosti og mozzarellaosti. Matarmikil sælkerapítsa. Ljósmynd/Linda Ben

Föstudagar eru oftar en ekki pítsakvöld hjá mörgum fjölskyldum og flestir sem setja saman vikumatseðil fyrir matarvefinn bjóða upp á uppskrift að sinni uppáhaldspítsu á föstudögum. Linda Ben uppskriftahöfundur, sem heldur úti uppskriftavefnum Linda Ben, er ein af þeim sem er reglulega með pítsakvöld og á sína uppáhaldspítsu. Hún deildi með fylgjendum sínum uppskriftinni að sinni uppáhalds á dögunum sem vert er að prófa. Linda kaupar annaðhvort tilbúið pítsadeig í Mosfellsbakarí eða gerir heimatilbúið. Það einfaldar oft lífið að kaupa tilbúið súrdeigspítsadeig sem fæst víða í bakaríum og öllum helstu matvöruverslunum eins og Hagkaup og Bónus svo dæmi séu tekin. 

Þessa pítsu gerum við alltaf þegar við erum með tsakvöld. Hún er alveg ótrúlega djúsí og mjög bragðmikil. Þetta er í mínum huga algjörlega klassísk pítsa og í augljóslega í miklu uppáhaldi hjá okkur. Allir sem koma hingað í pítsu fá að smakka þessa og við fáum alltaf mikið lof fyrir hana,“ segir Linda.

Uppáhaldspítsan hennar Lindu Ben

  • 1 pítsaadeig (þetta er mjög gott)
  • Mutti pizza sósa
  • Rifinn mozzarella
  • Skinka frá SS
  • Létt pepperoní frá SS
  • Sveppir
  • Döðlur
  • Ólífur
  • Rjómaostur
  • Heitt pítsakrydd
  • Hvítlauksolía

Aðferð:

  1. Kveikið á ofninum og stillið á 230°C, undir og yfir hita.
  2. Fletjið út deigið og setjið á smjörpappír. Smyrjið vel með pítsaasósunni.
  3. Dreifið rifna mozzarrella ostinum yfir.
  4. Skerið skinkuna í bita og dreifið henni yfir ásamt pepperoní.
  5. Skerið sveppina og döðlurnar og dreifið þeim yfir ásamt ólífum og rjómaosti.
  6. Kryddið með pítsaakryddi og bakið inn í ofni þar til kantarnir eru byrjaðir að brúnast og osturinn aðeins orðinn gylltur á nokkrum stöðum.
  7. Bragðbætið með hvítlauksolíu að eigin vali.
  8. Njótið við kertaljós og huggulegheit í góðum félagsskap.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert