Þetta eru bragðbestu makkarónurnar í París

Ef þú ert á leið til Parísar þá er ómissandi …
Ef þú ert á leið til Parísar þá er ómissandi að bragða á ekta franskri makkarónu og njóta. Hér finnur þú bragðbestu makkarónurnar í heimi. Ljósmynd/Samsett

Ef þú ert á leið til Parísarborgar þá er ferðinni alls ekki lokið fyrr en búið er að bragða á frönsku sætmeti og þar eru franskar makkarónur fremstar í flokki. Góð makkaróna er ekki bara fyrir augað, áferðin er örlítið brakandi og makkarónan bráðnar í munni. 

Allar makkarónur eru handgerðar frá upphafi til enda af frönskum bökurum eða svokölluðum „pastry“ meistara og hvert bakarí eitt og sér gerir makkarónurnar að eigin smekk. Ljúft er að fá ekta gott kaffi að hætti Frakka með makkarónunni eða flauelsmjúkt kampavín, kampavín og makkarónur er undursamleg blanda.

Hér eru nokkrir frábærir viðkomustaðir í París til að gæða sér á ekta frönskum makkarónum.

Ladurée

Ótrúlega fallegar og litríkar sælkeraverslanir þar sem græni liturinn er …
Ótrúlega fallegar og litríkar sælkeraverslanir þar sem græni liturinn er í forgrunni og makkarónurnar eru í öllum regnbogans litum. Ljósmynd/Samsett

Pierre Hermé Paris 

Stílhreinar sælkeraverslanir hjá Pierre Hermé sem einnig þekktur fyrir að …
Stílhreinar sælkeraverslanir hjá Pierre Hermé sem einnig þekktur fyrir að vera með besta súkkulaði í heimi. Fallegar gjafaöskjur eru í boði fyrir makkarónurnar og gaman að kaupa öskju og taka heim sem gjöf. Ljósmynd/Samsett

Gérard Mulot

Mulot eru skemmtileg kaffihús sem bjóða upp á dýrindis makkarónur …
Mulot eru skemmtileg kaffihús sem bjóða upp á dýrindis makkarónur og ánægjulega upplifun þar sem mannlífið iðar af lífi. Ljósmynd/Samsett

Fauchon

Litagleði og nútímalegur stíll einkennir þessa dásamlegu sælkeraverslun þar sem …
Litagleði og nútímalegur stíll einkennir þessa dásamlegu sælkeraverslun þar sem makkarónurnar spila aðalhlutverkið. Ljósmynd/Samsett

Lenotre

Undursamlegar makkarónur er hér að finna þar sem brögðin eru …
Undursamlegar makkarónur er hér að finna þar sem brögðin eru ævintýraleg og öskjurnar tala sínu máli. Ljósmynd/Samsett

Angelina Paris

Kaffihúsið fræga og sívinsæla Angelina er með ómótstæðilega ljúffengar makkarónur …
Kaffihúsið fræga og sívinsæla Angelina er með ómótstæðilega ljúffengar makkarónur og er frægt fyrir heita súkkulaði sem enginn stenst. Ljósmynd/Aðsend

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert