Fjórar spæsí tómatsósur væntanlegar

Mbl.is/Heinz

Það eru hvorki meira né minna en fjórar nýjar tómatsósur væntanlegar frá Heinz og okkur langar að smakka þær allar.

Sterkar sósur hafa svo sannarlega verið að stimpla sig fast inn síðustu misseri og þar eru tómatsósur engin undantekning. Heinz færir okkur fjórar gerðir af sterkum tómatsósum - þá chipotle, jalapenjó, habanero og svo Hot 57, sem fólk virðist vera sú sem fólk bíður hvað spenntast eftir - enda fyrsta nýjungin frá Heinz í rúman áratug, þar sem rautt jalapenjó er stjarnan í sósunni og á að rífa vel í bragðlaukana. Heinz kom nýverið á markað með pastasósu í samstarfi við Absolut Vodka, en þeir eru alveg óhræddir við að stíga út fyrir rammann og prófa nýja hluti. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert