Byggði bollurnar á brúðartertunni

Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir

„Hér eru á ferðinni bollur sem byggðar eru á minni uppáhalds köku, súkkulaðiköku með hindberjum og lakkrís. Hún fékk meira segja þann heiður að vera brúðartertan okkar í ágúst á seinasta ári. Svo það má segja að þessar slógu rækilega í gegn en hindber, lakkrís og súkkulaði er alveg frábær bragðbomba,“ segir Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir á Döðlur og smjör um þessar dýrindis bollur sem hún segir að séu sínar uppáhalds.

Vatnsdeigsbollur

  • 250 ml vatn
  • 125 g smjör
  • 125 g hveiti
  • 4 egg

Aðferð:

  1. Stillið ofn á 180°c. Setjið vatn og smjör í pott og leyfið smjörinu að bráðna.
  2. Takið pottinn af hitanum og hrærið hveitinu saman við þar til deigið er orðið einn massi, kælið deigið örlítið.
  3. Setjið deigið í hrærivélarskál og bætið eggjunum út í einu í einu og hrærið vel á milli.
  4. Setjið deigið þá í sprautupoka og sprautið bollur á smjörpappírsklædda plötu, eða notið tvær teskeiðar til setja deigið á plötuna.
  5. Bakið í 18-20 mínútur.  
  6. Ef þið viljið hafa bollurnar stærri þá er tíminn aukinn í samræmi við það.

Lakkrískrem

  • 1 pokar Apollo piparfylltur hjúplakkrís
  • ½ dl rjómi

Aðferð:

  1. Setjið hráefnin saman í pott og látið malla á miðlungshita í 10-20 mín. Þar til að lakkrísinn er að mestu bráðnaður.
  2. Setjið í skál og leyfið að kólna, gott að setja inn í ísskáp í svolitla stund.

Fylling

  • 500 ml rjómi
  • 10-15 hindber, frosin
  • flórsykur

Aðferð:

  1. Skerið bollurnar í tvennt. Þeytið rjómann og setjið í sprautupoka, sprautið hring á neðri helming bollunnar og skiljið eftir pláss í miðjunni.
  2. Takið þá eina teskeið af lakkrískremi og setjið í miðjuna, gott er að setja einn rjómadropa yfir.
  3. Takið þá frosin hindber og myljið yfir rjómann með því að pressa þau saman svo þau leysast upp í korn.
  4. Lokið bollunum og sáldrið flórsykri yfir þær með sigti eða tesíu.
Ljósmynd/Guðrún Ýr Eðvaldsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert