Unaðslegar kókosbollu-bollur

Ljósmynd/Gott í matinn

Vatnsdeigsbolla + kókosbolla = kókosbollu bolla! Einföld og ómótstæðilega góð fylling sem hægt er að útbúa fyrir heimabakaðar vatnsdeigsbollur eða tilbúnar bollur sem fást í næstu verslun.

Kókosbollu bollur

  • 8 stk. vatnsdeigsbollur
  • 500 ml rjómi frá Gott í matinn
  • 4 stk. kókosbollur
  • súkkulaðiglassúr

Aðferð

  1. Bakið vatnsdeigsbollur eða kaupið tilbúnar bollur í næstu verslun.
  2. Þeytið rjóma og setjið til hliðar.
  3. Stappið kókosbollur í skál með gaffli.
  4. Fyllið bollurnar með smá súkkulaðiglassúr, þeyttum rjóma og kókosbollum.
  5. Setjið glassúr eða flórsykur yfir bollurnar.
View this post on Instagram

A post shared by Matur á MBL (@matur.a.mbl)

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert