Nachosréttir klikka aldrei og þessi er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Mexíkósk ostablanda kryddar ekki bara réttinn góða, heldur tilveruna sömuleiðis svo nú er bara að skella í nachos og njóta!
Súper-Nachos með nautahakki og mexíkóskri ostablöndu
- 350 g nautahakk
- 2 msk. taco krydd
- 1 poki nachos flögur
- 200 g svartar baunir
- 150 g salsasósa
- 200 g mexíkósk ostablanda
- kirsuberjatómatar
Eftir smekk
- jalapeno
- rauðlaukur
- maísbaunir
- sýrður rjómi 18% frá Gott í matinn
- lime
- kóríander
Aðferð:
- Steikið hakkið á pönnu og kryddið með taco kryddi.
- Raðið einu lagi af nachos flögum í fat eða ofnskúffu og setjið síðan nautahakk, svartar baunir, salsasósu og mexíkóska ostablöndu yfir allt.
- Endurtakið að minnsta kosti þrisvar sinnum.
- Endið á vænu lagi af osti yfir hakk, baunir og salsasósu.
- Bakið í ofni við 200°C í um 15 mínútur eða þar til osturinn er bráðinn og flögurnar aðeins farnar að gyllast.
- Skerið niður annað grænmeti á meðan, setjið yfir í lokin og berið fram með sýrðum rjóma og lime.