Besta eplatrix allra tíma

Epli eiga það til að verða brún þegar við skerum …
Epli eiga það til að verða brún þegar við skerum þau í sundur og látum þau standa í smá tíma. mbl.is/News.com.au

Barnið bað um epli en kann ekki að skera það í báta! Það fer að líða að því að skólarnir byrji aftur og þá tekur við að smyrja nesti á mörgum heimilum. Það er afar gott að taka með sér hollustunammi inn í vinnudaginn, sama hvort þú ert í skóla eða annað.

Þegar við höfum skorið eplið í báta eða sneiðar verður það fljótt brúnt og leiðinlegt á litinn, sérstaklega ef við borðum það ekki strax. En hér fyrir neðan má fylgja einföldum skrefum og eplið mun haldast ferskt eftir að hafa vera skorið.

  • Fjarlægðu kjarnann úr miðjunni á eplinu með kjarnhreinsi.
  • Skerðu eplið í báta eða sneiðar.
  • Passaðu að eplið haldist saman (eins og heilt) og settu kjarnann aftur inn í miðju eplisins.
  • Settu teygju utan um eplið svo það falli ekki í sundur.
  • Og eplið mun haldast ferskt og gott í nestispakkanum.
Hér er búið að ná kjarnanum úr. Eplið er síðan …
Hér er búið að ná kjarnanum úr. Eplið er síðan skorið í sneiðar eða báta og kjarnanum komið aftur fyrir í miðjunni. mbl.is/Youtube
Sniðugt er að nota teygju til að halda eplabitunum saman.
Sniðugt er að nota teygju til að halda eplabitunum saman. mbl.is/Youtube
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert