Sósan sem tekur við af kokteilsósunni

Er þessi að fara að taka við af klassísku kokteilsósunni?
Er þessi að fara að taka við af klassísku kokteilsósunni? mbl.is/Thecookierookie.com

Við sem elskum franskar kartöflur með nánast öllum mat – við viljum fá okkar sósu með frönskunum. Hin eina sanna kokteilsósa fellur seint úr gildi en það eru aðrar sósur sem reyna að festa sig í sessi og sýna sig með nýrri bragðbombu sem erfitt er að standast. Hér er uppskrift að einni slíkri sem rífur örlítið í.

Sósan sem tekur við af kokteilsósunni

  • 2,5 bollar gott majónes
  • ½ bolli tómatsósa
  • 1 msk. Hot Buffalo-sósa
  • 1 msk. safi úr súrum gúrkum (safinn úr krukkunni)
  • 2 tsk. Worcestershire-sósa
  • ¼ tsk. chili-krydd
  • ½ tsk. salt
  • ¼ tsk. paprikukrydd

Aðferð:

  1. Blandið saman öllum hráefnum í litla skál og hrærið þar til sósan verður loftkennd og mjúk.
mbl.is/Thecookierookie.com
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert