Nýjasta æðið er rósavín í úðabrúsa

Við erum svo að elska þessa úðabrúsa til að dekra …
Við erum svo að elska þessa úðabrúsa til að dekra enn betur við grænu börnin á heimilinu. mbl.is/Instagram_Cosmoprof_Howellnj

Það er svo gaman að fylgjast með þegar netheimurinn fer á hina hliðina yfir ákveðnum fréttum og öðrum nýjungum. Þetta sem við sýnum hér er engin undantekning.

Nú er möguleiki á að kaupa úðabrúsa sem lítur út eins og fínasta rósavínsflaska. Brúsinn er framleiddur af hárfyrirtækin Framer sem hafði ekki séð komandi „æði“ grípa um sig. Því allir plöntuáhugamenn og konur þarna úti eru að ærast yfir þessum brúsa og nota hann til að vökva grænu „börnin“ á heimilinu – af hverju ekki!

Það má að sjálfsögu fylla brúsann af rósavíninu sjálfu þó að hann sé hugsaður fyrir vatn og spurning hvort við tímum að eyða góðu víni á þann máta.

Þeir sem vilja eitthvað annað en brúsa sem rósavín, þá hefur sama fyrirtæki einnig hannað samskonar flösku sem er í laginu eins og Jack Daniels viskí og er líka ansi flott. Fyrir áhugasama þá má panta flöskurnar HÉR.

mbl.is/Summit Salon Services
Úðabrúsarnir koma líka sem viskí flöskur.
Úðabrúsarnir koma líka sem viskí flöskur. mbl.is/Framer
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert