Pottrétturinn sem klikkar aldrei

mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir

„Þennan pottrétt hefur mamma mín búið til um árabil og ég man ég hreinlega elskaði þegar hann var í matinn. Ég hef oft útbúið þennan rétt fyrir mína fjölskyldu og loksins kom ég honum niður á blað til að fleiri geti notið hans,“ segir Berglind Hreiðars á Gotteri.is um þennan rétt sem hún hefur loksins deild uppskriftinni að. 

Nautapottréttur

  • 600 g nautagúllas
  • 200 g tómatpúrra
  • 1 stk. laukur
  • 1 stk. rauð paprika
  • 5 gulrætur
  • 200 g rjómaostur frá Gott í matinn
  • 200 g matreiðslurjómi frá Gott í matinn
  • Salt, pipar, karrý, paprikukrydd, kraftur

Aðferð:

  1. Saxið niður lauk, skerið gulrætur í sneiðar og papriku í strimla.
  2. Steikið laukinn á meðalhita upp úr olíu og karrý þar til hann mýkist, bætið þá gulrótum og papriku saman við, ögn meiri olíu og salti og pipar, færið yfir á disk.
  3. Léttsteikið þá gúllasið í olíu á sömu pönnu, nóg er að rétt brúna það á hliðunum því það mun fulleldast þegar pottrétturinn mallar.
  4. Bætið tómatpúrru á kjötið á pönnunni, rjómaosti og matreiðslurjóma og hrærið vel.
  5. Hellið þá grænmetinu saman við og kryddið réttinn til með salti, pipar, paprikudufti og krafti.
  6. Gott er að leyfa réttinum að malla í 30-60 mínútur og bera fram með hrísgrjónum.
mbl.is/Berglind Hreiðarsdóttir
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert