Heimagerður ís á innan við mínútu

Sumar græjur eru einfaldlega svo snjallar að þær fara að flokkast sem lífsnauðsynlegar. Vitamix-blandarinn er mögulega í þeim flokki enda fátt sem hann getur ekki gert. 

Hér sjáum við hvernig hægt er að búa til ís á innan við mínútu. Hér er einungis ein útgáfa á ferðinni en ljóst er að notkunarmögueikarnir eru óendanlegir og ekki laust við að jólaísinn í ár verði mun auðveldari í framkvæmd en oft áður. 

Heimagerður ís á innan við mínútu

  • 2 bollar frosin jarðarber
  • 2 bollar frosin ávaxtablanda
  • 400 ml vanilluskyr
  • 2 msk. hunang

Aðferð:

Setjið allt í Vitamix-blandarann og blandið. 

Athugið að möguleikarnir eru endalausir en tíminn sem þetta tók var innan við mínúta. 

Við stungum ísnum í frysti í 30 mínútur til að fá rétta áferð á kúlurnar fyrir myndatökuna.

mbl.is/
mbl.is/
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert