„Það er alveg magnað, og það er stærsta ástæðan fyrir því að ég er í þessu starfi, að upplifa hvað maður getur gert mikið bara á nokkrum klukkustundum. Enginn velur að koma hingað,“ segir Hrönn Stefánsdóttir, verkefnastjóri á Neyðarmóttöku fyrir þolendur kynferðisofbeldis.