„Það sem við erum að finna eru eyrnapinnar og mikið af blautklútum,“ segir Sigurrós Friðriksdóttir, starfsmaður Umhverfisstofnunar, en starfsmenn gengu fjöruna í Bakkavík á Seltjarnarnesi í dag og tíndu rusl. Í fjörunni mældist 200% aukning á sorpi úr skólpi á milli áranna 2016 og 2017.