Norður-Írland mun fá einn milljarð punda, sem svarar til 133 milljarða króna, í viðbótarframlag frá breska ríkinu á næstu tveimur árum. Þetta er hluti af samkomulagi sem Theresa May, formaður Íhaldsflokksins hefur gert við Lýðræðislega sambandsflokkinn, DUP.