mbl | sjónvarp

„Gaupi var orðinn pínu stressaður“

ÍÞRÓTTIR  | 17. apríl | 13:22 
Þorsteinn Leó Gunnarsson og markvörðurinn Brynjar Vignir Sigurjónsson áttu báðir góðan leik er Afturelding tryggði sér sæti í undanúrslitum úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær.

Þorsteinn Leó Gunnarsson og markvörðurinn Brynjar Vignir Sigurjónsson áttu báðir góðan leik er Afturelding tryggði sér sæti í undanúrslitum úrvalsdeildarinnar í handknattleik í gær. 

Afturelding vann Stjörnuna, 35:24, í Mosfellsbæ og mætir Valsmönnum í undanúrslitum. 

Þorsteinn og Brynjar mættu til viðtals í Punktalínunni á Sjónvarpi Símans í gærkvöldi. 

Hvernig leggst Vals einvígið í ykkur? Spurði þáttastjórnandinn Benedikt Grétarsson. 

„Mjög vel, við erum að koma sterkir inn í undanúrslitin þannig ég er spenntur fyrir því einvígi,“ svaraði Þorsteinn Leó. 

„Við eigum bullandi séns í þá, við erum að fara í það einvígi til að vinna þá,“ bætti Brynjar við. 

„Ég fann það alveg á Gaupa, hann var pínu stressaður eftir þessa frammistöðu,“ bætti sérfræðingurinn Jóhann Gunnar Einarsson við en Valsarinn Gaupi [Guðjón Guðmundsson] lýsti leiknum í gærkvöldi. 

 

 

 

Veiði
Vandaðir fræðsluþættir um fluguköst í umsjón Barkar Smára Kristinssonar. Þættirnir eru gerðir með því hugarfari að gera fluguveiðimönnum á Íslandi kleift að skilja betur út á hvað fluguköst ganga.
Loading