mbl | sjónvarp

Hékk á bláþræði hjá Arsenal (myndskeið)

ÍÞRÓTTIR  | 28. apríl | 16:06 
Þrátt fyrir að vera með 3:0 forystu í hálfleik hékk sigur Arsenal gegn grönnum sínum í Tottenham á bláþræði á lokamínútunum í viðureign liðanna á Tottenham-leikvanginum í London í dag.

Þrátt fyrir að vera með 3:0 forystu í hálfleik hékk sigur Arsenal gegn grönnum sínum í Tottenham á bláþræði á lokamínútunum í viðureign liðanna á Tottenham-leikvanginum í London í dag.

Sjálfsmark kom Arsenal á bragðið og síðan skoruðu Bukayo Saka og Kai Havertz fyrir hlé. Cristian Romero og Son Heung-min minnkuðu muninn fyrir Tottenham og lokatölurnar 3:2 en Arsenal náði fjögurra stiga forystu.

Mörkin og helstu atvikin má sjá í myndskeiðinu en mbl.is birtir efni úr ensku úrvalsdeildinni í samvinnu við Símann Sport.

Loading