Umhverfisvæn hönnun Icewear

Flíkurnar í Black Sheep vörulínunni frá Icewear eru einstaklega léttar, …
Flíkurnar í Black Sheep vörulínunni frá Icewear eru einstaklega léttar, anda vel og gefa góðan varma, þökk sé einstökum eiginleikum íslensku ullarinnar. Ljósmynd/Aðsend

Ný vörulína frá Icewear, Black Sheep Collection, er sérstæð á heimsvísu fyrir þá staðreynd að hún er einangruð með íslenskri ullarfyllingu. Flíkurnar eru því einstaklega léttar, anda vel og gefa góðan varma, þökk sé einstökum eiginleikum íslensku ullarinnar. Rakel Rut Ingibjargardóttir, hönnuður Icewear segir að hönnunin sé tímalaus og umhverfisvæn en einungis sé unnið með hágæða endurunnin efni í línuna þar sem hvert smáatriði er vel úthugsað.

„Þetta er ný umhverfisvæn OEKO-TEX 100 gæðavottuð útivistarlína og íslenska ullarfyllingin samanstendur af 80% íslenskri ull og 20% endurunnu PET / bio-polyester. Sjálfbærni var höfð að leiðarljósi við alla þætti hönnunar á Black Sheep Collection. Línan er einangruð með léttri 60 gramma íslenskri ullarfyllingu sem gerir fatnaðinn hentugan fyrir mikla hreyfingu við útivist. Íslenska ullin er lífrænt hráefni og notkun hennar í útivistarfatnaði mikil bylting,“ segir Rakel

„Til að fullkomna línuna var meginfókus á að allt annað hráefni í línunni sé einnig vistvænt og gæðavottað og OEKOTEX-100 gæðastaðallinn staðfestir hvernig til tókst.“

Heilgalli er fullkomin flík í sumar einn og sér eða …
Heilgalli er fullkomin flík í sumar einn og sér eða sem miðlag yfir vetrartímann en þessi heilgalli er í nýrri vörulínu Icewear. Ljósmynd/Aðsend

Gæðavottuð íslensk útivistarlína

Allt frá stofnun Icewear árið 1972 hefur ullin verið kjarni í þróun, hönnun og framleiðslu Icewear á fatnaði. Íslensk ullarfylling af þessu tagi er tiltölulega nýtt fyrirbæri í einangrun á útivistarfatnaði en undirstaðan í ullinni sem notuð er í fyllinguna er afgangsull sem áður nýttist ekki og hentar ekki eins vel í prjónaband, að sögn Aðalsteins Pálssonar forstjóra Icewear.

„Það varð ákveðin bylting árið 2021 þegar Icewear setti á markað nýja útivistarlínu sem er einangruð með íslenskri ull en það frumkvöðlaverkefni hefur algjörlega slegið í gegn. Núna er Icewear aftur í fararbroddi með frumsýningu á Black Sheep Collection sem er fyrsta íslenska útivistarlínan sem er að fullu gæðavottuð með OEOKO-TEX 100 staðlinum.“

Það er mikilvægt fyrir Icewear að vera leiðandi í bæði …
Það er mikilvægt fyrir Icewear að vera leiðandi í bæði hönnun og sjálfbærni og nýjasta línan þeirra, Black Sheep, er hugsuð á alþjóðlegan markað samhliða því að vera kynnt á innanlandsmarkaði. Ljósmynd/Aðsend

Hönnuð fyrir útivist í íslenskum aðstæðum

Aðalsteinn talar um að það sé mikilvægt fyrir Icewear að vera leiðandi í bæði hönnun og sjálfbærni enda er línan miðuð á alþjóðlegan markað samhliða því að vera kynnt á innanlandsmarkaði.

„Hönnunin tekur mið af einstökum eiginleikum íslensku ullarinnar með það að markmiði að ná fram hámarks léttleika samhliða virkni fyrir þá sem stunda útivist og hreyfingu og því er ullareinangrunin mun léttari í Black Sheep Collection. Línan er líka sérstaklega hönnuð fyrir útivist í íslenskum aðstæðum þar sem einstakir eiginleikar íslensku ullarinnar njóta sín til fulls með hámarks einangrun, góðri endingu og öndun og einstakri varmajöfnun. 

Ytra byrði línunnar er unnið úr efnum sem tryggja liðleika en er um leið vatnsfráhrindandi. Einnig er ytra byrði Black Sheep vörulínunnar unnið úr endurunnum efnum og því bylting fyrir útivistarfólk sem kýs vistvænni kost og góða virkni við mismunandi aðstæður.“

Heilgalli sem hentar öllum

Þá talar Rakel um að það sé ný viðbót í Black Sheep línunni sem margir hafa beðið eftir og mun án efa slá í gegn. „Það er heilgalli sem er „unisex“ og hentar því öllum. Gallinn kemur í svörtum lit og í þessum sama stíl og annar fatnaður í línunni, mjúkur og léttur en hlýr.

Fullkominn í sumar einn og sér eða sem miðlag yfir vetrartímann,“ segir Rakel og bætir við að vörulína Black Sheep samanstandi af jökkum í nokkrum mismunandi gerðum, buxum og vestum í dömu- og herrasniði, stuttbuxum og síðum og stuttum pilsum. „Þá koma flíkurnar í tveimur litum, annars vegar í svörtu og hins vegar dökkgrænu og ljósbrúnu.“

Black Sheep vörulínan er einangruð með léttri 60 gramma íslenskri …
Black Sheep vörulínan er einangruð með léttri 60 gramma íslenskri ullarfyllingu sem gerir fatnaðinn hentugan fyrir mikla hreyfingu við útivist. Íslenska ullin er lífrænt hráefni og notkun hennar í útivistarfatnaði mikil bylting. Ljósmynd/Aðsend

Hrein og endurunnin efni

Aðspurð hvað það þýði að vörulínan sé gæðavottuð segir Rakel að öll Black Sheep vörulínan sé 100% OEKO-TEX 100 gæðavottuð sem þýðir vottun frá þriðja aðila sem tryggir að varan sé laus við skaðleg efni. „OEKO-TEX 100 vísar í að yfir þúsund skaðleg efni, sem geta haft áhrif á heilsu okkar og umhverfið, séu athuguð og með stimplinum fullvissað um að efnin séu hrein. Viðskiptavinurinn getur verið viss um að hann sé að kaupa umhverfisvæna flík sem er vottuð af óháðum aðila sem er hvorki vörumerkið sjálft né framleiðandinn.

Notast er við endurunnin efni eftir fremsta megni og allt hráefni sem er notað í flíkina; efni, tvinni, teygjur, rennilásar, smellur og svo framvegis hefur verið prófað fyrir skaðlegum efnum og er fullvottað. Allar OEKO-TEX 100 vottaðar Icewear flíkur bera QR kóða sem viðskiptavir geta skannað og aflað sér frekari upplýsinga um gæðavottunina,“ segir Rakel að lokum og hvetur alla til að skoða þessa fallegu línu hér.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert