Scania kynnir nýja hybrid-lausn fyrir báta og minni skip

Rex er 150 manna farþegaferja sem var smíðuð 1937 og …
Rex er 150 manna farþegaferja sem var smíðuð 1937 og er útbúin með Scania Hybrid-búnaði. Ljósmynd/Aðsend

Undanfarin ár hefur Scania þróað nýja lausn í rafvæðingu báta sem hefur þá sérstöðu að Scania hefur þróað allan pakkann sjálft: rafhlöður, rafmótor, brunahreyfil, mengunarvarnarbúnað, hugbúnað og stjórnkerfi.

Nýr rafmótor frá Scania ásamt háþróaðri dísilvél myndar heildstætt hybrid-kerfi þar sem hægt er að keyra vélarnar saman eða nýta hvora um sig sem sjálfstæðan aflgjafa. Hybrid-lausnin frá Scania skilar allt að 92% minni losun á CO2 og ef eingöngu er keyrt á rafmótor er losun CO2 um 98% minni.

Dýrmæt reynsla

Nýverið komu Åsa Bennerstam, viðskiptastjóri fyrir Ísland hjá Scania, og Torben Dabrowski, sérfræðingur í orkuskiptalausnum bátavéla hjá Scania, hingað til lands á vegum Kletts til að kynna fyrir viðskiptavinum Kletts þessa nýju lausn. Scania hyggst hins vegar ekki setja búnaðinn á markað fyrr en hann hefur verið fullreyndur og full þjónusta er til staðar hjá umboðs- og þjónustuaðilum.

Árið 2020 setti Scania hybrid-vél til reynslu í M/S Rex, 150 manna farþegaferju sem siglir milli Ekerö og miðborgar Stokkhólms. Rex var smíðaður árið 1937, uppfærður fyrir hybrid-rekstur árið 2020 og fékk svo nýju hybrid-vélina frá Scania árið 2023.

„Við vildum sjá þetta virka fullkomlega áður en við förum með þetta á markað og þessi krefjandi notkun á búnaðinum hefur fært okkur innsýn, lærdóm og dýrmæta reynslu með því að setja hann í skip sem notað er í atvinnurekstri,“ segir Torben.

Åsa Bennerstam, viðskiptastjóri fyrir Ísland, og Torben Dabrowski, sérfræðingur í …
Åsa Bennerstam, viðskiptastjóri fyrir Ísland, og Torben Dabrowski, sérfræðingur í orkuskiptalausnum bátavéla, komu hingað til lands á vegum Kletts. Með þeim á myndinni eru Sigurður Vilhjálmsson, sölustjóri aflvéla, og Karl Gerisson, sölufulltrúi Kletts. Ljósmynd/Aðsend

Á hárréttri leið

 „Síðan höfum við smíðað nýjan bát, sautján metra langan sem vegur 20–21 tonn. Hann er búinn tveimur V8-dísilvélum, tveimur rafmótorum sem eru boltaðir á dísilvélarnar og fjórum 104 kWh rafhlöðum. Frá því við hófum vinnu við þennan bát árið 2020 höfum við farið um allan heim og rætt við rekstraraðila og skipasmíðastöðvar um verkefnið.

Í kjölfarið höfum við aðlagað eitt og annað en á heildina eru viðbrögðin við þessari lausn á þann veg að við séum á hárréttri leið. Við verðum á bátasýningunni í Southampton í júní 2024 og getum þá sýnt mismunandi útfærslur á hvernig er hægt að keyra bátinn: eingöngu á rafmagni, á mismunandi hybrid-stillingum eða eingöngu á dísilvélunum,“ segir Torben.

Hljóðlátari bátar með minni útblæstri 

Hér á landi myndi hybrid-lausn henta til dæmis í hvalaskoðunarbáta, minni ferjur, dagróðrabáta og þjónustubáta fyrir fiskeldi. Klettur hefur verið í samtali við Norðursiglingu vegna verkefnis sem er enn á umræðustigi og Åsa og Torben skruppu því til Húsavíkur að hitta forsvarsmenn fyrirtækisins.

„Við vildum skoða hvaða lausn myndi henta til að ná minnsta mögulega kolefnisspori í þeirra starfsemi með því að greina gögn um rekstur bátanna. Við viljum alltaf skilja eðli starfseminnar og hvar metnaður okkar viðskiptavina liggur til að vera viss um að geta framkvæmt það sem þeir vilja. Ef við teljum okkur ekki geta það viljum við ekki fara af stað með verkefnin,“ segir Torben.

Norðursigling stefnir á að setja Hybrid-vél frá Scania í Sæborgu.
Norðursigling stefnir á að setja Hybrid-vél frá Scania í Sæborgu. Ljósmynd/Aðsend

Heimir Harðarson er einn stofnenda og eigenda Norðursiglingar og hann talar um að næstu ár verður áherslan á „grænni flota“ með umhverfisvænni orkugjöfum. „Við erum með tólf báta í rekstri og þegar aðili eins og Scania þróar heildarlausn á þessu sviði erum við eðlilega spennt að koma að því borði.

Við höfum reynslu af dísilvélum frá Scania í fjórum af okkar bátum og höfum því trú á þessu verkefni. Hljóðlátari bátar með minni útblæstri gera það að verkum að fólk mun njóta náttúrunnar betur, hvort sem það er við hvala- og fuglaskoðun eða annars konar náttúruupplifun.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert