Arnaldur, Eiríkur og Kjartan sóttu um

mbl.is/Kristinn Magnússon

Þrjár umsóknir hafa borist um embætti dómara við Landsrétt.

Þetta kemur fram á vef dómsmálaráðuneytisins. 

Þann 19. apríl auglýsti ráðuneytið í Lögbirtingablaði laust til umsóknar embætti dómara við Landsrétt. Skipað verður í embættið frá 1. september 2024.

Umsóknarfrestur rann út þann 6. maí og eru umsækjendur eftirtaldir:

  • Arnaldur Hjartarson héraðsdómari
  • Eiríkur Elís Þorláksson dósent
  • Kjartan Bjarni Björgvinsson settur dómari við Landsrétt

Umsóknir verða afhentar dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara til meðferðar á næstu dögum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert