Tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum.
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í alþjóðlegri lögregluaðgerð á dögunum ásamt lögregluyfirvöldum í Bandaríkjunum og Portúgal og Europol.

Í tilkynningu frá lögreglunni segir að starfsmenn bandarísku alríkislögreglunnar hafi komið til Íslands. Tekin var niður ein vefsíða sem var hýst hérlendis í þágu rannsóknar á svikastarfsemi með rafmynt og peningaþvætti.

Aðgerðin gekk vel, en við hana naut lögreglan enn fremur aðstoðar þriggja í íslenskra fyrirtækja. Málið féll undir að vera misnotkun á íslenskum innviðum og var þetta liður í að verja þá. Enginn var handtekinn í aðgerðunum á Íslandi, en einn í Bandaríkjunum og annar í Portúgal.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert