Vilja að samfélagsmiðlarisarnir axli ábyrgð

Segja samfélagsmiðlafyrirtækin í einstakri stöðu til að hafa áhrif á …
Segja samfélagsmiðlafyrirtækin í einstakri stöðu til að hafa áhrif á hegðun og venjur notenda.

Meirihluti barna og ungmenna á Norðurlöndum eyðir meira en þremur klukkustundum á dag fyrir framan skjá. Sumir allt að fimm til sex klukkustundum. 

Þetta var meðal þess sem rætt var um á fundi Norrænu ráðherranefndarinnar um félags- og heilbrigðismál í Stokkhólmi á dögunum þar sem áhrif skjátíma á heilsu barna og ungmenna var til umræðu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Stjórnarráðinu

Fundinn sóttu félags- og heilbrigðismálaráðherrar Finnlands, Danmerkur, Noregs, Íslands, Færeyja …
Fundinn sóttu félags- og heilbrigðismálaráðherrar Finnlands, Danmerkur, Noregs, Íslands, Færeyja og Álandseyja ásamt framkvæmdastjóra og skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar. Ljósmynd/Stjórnarráðið

Foreldrar hafi áhyggjur af þróuninni  

Norrænu ráðherrarnir hafa miklar áhyggjur af þeim neikvæðu áhrifum sem aukin skjánotkun og stafrænir miðlar geta haft á heilsu og vellíðan barna og ungmenna. Vilji er til að auka þrýstinginn á stóru samfélagsmiðlafyrirtækin um að axla meiri ábyrgð og grípa til aðgerða til að draga úr neikvæðum áhrifum mikils skjátíma.

„Mikill skjátími stelur athygli og tíma frá öðru sem skiptir miklu máli fyrir þroska og heilsu barna og ungmenna eins og hreyfingu, lestri, svefni og samverustunda með öðrum,“ er haft eftir Guðmundi Inga Guðbrandssyni, félags- og vinnumarkaðsráðherra, sem sat fundinn, í tilkynningunni. 

„Við þurfum að ræða afleiðingar þessa og hvaða ábyrgð stóru samfélagsmiðlafyrirtækin bera á aukinni vanlíðan barna og ungmenna. Við ættum að þrýsta meira á fyrirtækin svo þau grípi til aðgerða. Ég veit að foreldrar hafa miklar áhyggjur af þróuninni. Foreldrar bera mikla ábyrgð en eiga ekki að bera hana einir.“

Sameiginlegt verkefni á norrænum vettvangi

Á fundinum ræddu ráðherrarnir um sameiginleg verkefni á norrænum vettvangi til að auka þekkingu á áhrifum mikils skjátíma. Vilja þeir að Norðurlöndin nálgist málefnið á breiðum grunni með þátttöku allra hlutaðeigandi hagsmunaaðila, þar á meðal foreldra, skóla, heilbrigðis- og velferðarstofnana, og frjálsra félagasamtaka. Einnig að þrýst verði á að samfélagsmiðlarisarnir beri ábyrgð.

Með miklu magni upplýsinga, skemmtunar og samskipta sem boðið er upp á á netinu séu stóru samfélagsmiðlafyrirtækin í einstakri stöðu til að hafa áhrif á hegðun og venjur notenda. Þess vegna sé mikilvægt að þau taki ábyrgð sína alvarlega og stuðli að heilbrigðari og minni notkun miðla sinna.

Í tengslum við fundinn sameinuðust norrænu ráðherrarnir um grein undir yfirskriftinni Samfélagsmiðlarisarnir verða að axla ábyrgð.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert