Mennta- og barnamálaráðuneytið býður til kynningar á Mælaborði farsældar barna, nýju verkfæri sem er hannað til að styðja við innleiðingu farsældarlaganna og innleiða gagnadrifna stefnumótun hvað hag barna varðar.
Mælaborðið hefur verið í þróun frá því ritun farsældarlaganna hófst og farið fram í umfangsmiklu samráði við önnur ráðuneyti, fræðasamfélagið, hagaðila, sveitarfélög og ekki síst börn.
Fundurinn hefst kl. 9 og hér fyrir neðan má fylgjast með í beinu streymi.
Í mælaborðinu eru fimm grunnstoðir farsældar skilgreindar: Menntun, heilsa og vellíðan, öryggi og vernd, lífsgæði og félagsleg staða, þátttaka og félagsleg tengsl. En umræddir þættir ramma inn helstu forsendur þess að börn nái að vaxa og dafna í nútíð og framtíð. Undir hvern grunnþátt falla tölfræðigögn er gefa mynd af stöðu hvers þáttar og lýsa farsæld barna hér á landi með heildstæðum hætti, að því er segir í tilkynningu á vef ráðuneytisins.
Hlutverk mælaborðsins er að veita yfirsýn yfir stöðu farsældar barna á Íslandi á hverjum og einum tíma, með áherslu á viðkvæma hópa og samfélagslegar áskoranir. Enn fremur er því ætlað að fylgjast með þróun farsældar yfir tíma og leggja mat á árangur innleiðingar farsældarlaga. Gögnin eru birt út frá fjölda bakgrunnsbreyta og hægt er að skoða þau með tilliti til landshluta og átta stærstu sveitarfélaganna.