Samtöl í gangi

Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknar.
Sigurður Ingi Jóhannsson er formaður Framsóknar. mbl.is/Kristinn Magnússon

Framsóknarflokkurinn mun ekki boða til þingflokksfundar í dag að sögn Ingibjargar Ólafar Iskasen, þingflokksformanns flokksins. Hún staðfestir að samtal sé í gangi á milli formanna og varaformanna stjórnarflokkanna þriggja. 

„Staðan er núna bara þannig að það eru samtöl í gangi og við erum viðbúin að boða til þingflokksfundar með stuttum fyrirvara,“ segir hún spurð hvort þingflokksfundur verði í fyrramálið, „það liggur ekkert fyrir eða hvort.“

Ekki hefur náðst í  Hildi Sverrisdóttur, formann þingflokks Sjálfstæðisflokksins, Vilhjálm Árnason, varaformann þingflokks Sjálfstæðisflokksins. Orra Pál Jóhannsson, formann þingflokks Vinstri grænna, né Bjarkey Olsen Gunnarsdóttur, varaformann þingflokks Vinstri grænna í dag. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert