Lífið gengur nokkurn veginn sinn vana gang í byggðunum á Suðurnesjum að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum. Segir hann alla vinna á sínum stöðum en án heits vatns.
Páll Erland, forstjóri HS Veitna, sagði í samtali við mbl.is í morgun að íbúar á Suðurnesjum mættu búast við að heitt vatn verði farið að streyma til fyrstu húsa undir hádegi í dag.
Sagði hann viðgerð lokið á hitaveituæðinni frá Svartsengi og heitt vatn sé farið að streyma í tankana á Fitjum.
Úlfar segir brýnustu verkefnin að fá heitavatnskerfið til að virka og koma hita á húsin. Þá segir hann að haldið verði áfram með sprungufyllingar í Grindavík í dag og að haldið verði áfram með gerð bráðabirgðavegarins yfir nýrunnið hraunið á Grindavíkurvegi.
Víða eru skemmdir á lagnakerfi að sögn Úlfars, til að mynda undir bílastæðum, en hann segir það koma betur í ljós þegar vatni verður hleypt á kerfin.
Aðgengi Grindvíkinga að bænum í dag verður með sama hætti og verið hefur undanfarna daga að sögn Úlfars Lúðvíkssonar, lögreglustjóra á Suðurnesjum.
„Bæði íbúar og fyrirtæki eru að fara inn en auðvitað færri íbúar en áður,“ segir Úlfar og bætir því við að fyrirkomulagið verði endurskoðað síðar í dag.