#9 Verkfallsaðgerðir í undirbúningi?

Vil­hjálm­ur Birg­is­son, formaður Starfs­greina­sam­bands Íslands og Verka­lýðsfé­lags Akra­ness, var aðalviðmæl­andi Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í níunda þætti af Spursmálum sem sýndur var í beinu streymi hér á mbl.is kl. 14.

Upptöku af þættinum má sjá í spilaranum hér að neðan og er hún aðgengi­leg­ öll­um.

​ Ásthildur Hannesdóttir ​

Mik­ill hiti hef­ur færst í kjara­deilu breiðfylk­ing­ar stétt­ar­fé­laga á al­menna vinnu­markaðnum og Sam­taka At­vinnu­lífs­ins síðustu daga. Í vik­unni slitnaði upp úr kjaraviðræðum samn­ingsaðila og hef­ur deil­unni verið vísað til rík­is­sátta­semj­ara.

Vil­hjálm­ur hef­ur borið mik­inn hita og þunga af deil­unni fyr­ir hönd breiðfylk­ing­ar­inn­ar og sat hann fyr­ir svör­um um þau mál og for­sendu­ákvæði sem samn­ingsaðilum helst grein­ir á um, hvers sé að vænta af rík­is­sátta­semj­ara og hvort verk­fallsaðgerðir séu í aðsigi.

Harka færðist í leikinn þegar Vilhjálmur var spurður spjörunum úr um nýjustu vendingar í kjaramálunum. Sjón er sögu ríkari.

Tæpitungulaus umræða og fréttir vikunnar

Þá mættu þau Dag­björt Há­kon­ar­dótt­ir, þing­kona Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, og Her­mann Guðmunds­son, for­stjóri Kemi, í settið og rýndu helstu frétt­ir vik­unn­ar und­ir stjórn Stef­áns Ein­ars. Af nógu var að taka í þeim efn­um og sköpuðust ansi líflegar og beinskeyttar umræður í kjölfarið.

Fylgstu með spenn­andi sam­fé­lagsum­ræðu í Spurs­mál­um alla föstu­daga kl. 14 hér á mbl.is.

Vilhjálmur Birgisson, Dagbjört Hákonardóttir og Hermann Guðmundsson eru gestir Stefáns …
Vilhjálmur Birgisson, Dagbjört Hákonardóttir og Hermann Guðmundsson eru gestir Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum dagsins. Samsett mynd
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert