Tuttugu bækur tilnefndar

mbl.is/Kristinn Magnússon

Tilnefningar til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans og Íslensku bókmenntaverðlaunanna 2023 voru kynntar í Eddu nú á fimmta tímanum. Alls voru tuttugu bækur tilnefndar eða fimm í hverjum flokki.

Forseti Íslands, Guðni Th. ­Jóhannesson, afhendir verðlaunin á Bessastöðu nýju ári. Formenn dómnefndanna fjögurra, Hjalti Freyr Magnússon, Kristján Sigurjónsson, Steingerður Steinarsdóttir og Steinunn Valdís Óskarsdóttir munu koma saman ásamt forseta­skipuðum formanni, Kristínu Ingu Viðarsdóttur, og velja einn verðlaunahafa úr hverjum flokki. Verðlaunaupphæðin er ein milljón króna fyrir hvert verðlaunaverk, sem Félag íslenskra bókaútgefenda kostar. Íslensku bókmenntaverðlaunin voru fyrst veitt árið 1989 og er ætlað að draga fram athyglisverðustu útgáfubækur hvers árs. Þetta er því í 35. sinn sem tilnefnt er til verðlaunanna.

Félag íslenskra bókaútgefenda gerði samkomulag við Íslenska glæpafélagið árið 2022 um að taka yfir verklega framkvæmd Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans ásamt því að kosta verðlaunin með sama hætti og Íslensku bókmenntaverðlaunin. Handhafi Blóðdropans verður, líkt og áður, framlag Íslands til norrænu glæpasagnaverðlaunanna Glerlykilsins.

Tilnefningar til Blóðdropans

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir til Íslensku glæpasagnaverðlaunanna Blóðdropans í stafrófsröð bókatitla:

  • Steindór Ívarsson fyrir Blóðmeri sem Storytel og Sögur útgáfa gefa út. „Spennandi frásögn af rannsókn á dularfullum og óhugnanlegum morðum í Reykjavík nútímans, sem tengjast ódæðisverki í fortíðinni. Vel er sagt frá framvindu rannsóknarinnar og hvernig ógnvekjandi atburðir grípa inn í hversdagstilveru fólks, sem virðist ofurvenjulegt. Spennunni er haldið fram á síðustu blaðsíðu.“
  • ​Stefán Máni fyrir Borg hinna dauðu sem Sögur útgáfa gefur út. „Vel heppnaður spennutryllir þar sem ein litríkasta persóna íslenskra glæpasagna leysir úr flóknu sakamáli í kappi við tímann. Sögunni vindur áfram með myndrænum og áreynslulausum hætti. Sjónarhorninu er einnig beint að óþolandi þjóðfélagsmeini og krefjandi fjölskyldulífi lögreglumannsins. Afraksturinn er vönduð glæpasaga sem heldur lesandanum á tánum frá upphafi til enda.“
  • ​Eva Björg Ægisdóttir fyrir Heim fyrir myrkur sem Veröld gefur út. „Vel sögð saga með fjölbreyttu, breysku persónugalleríi og slunginni atburðarás. Sögusviðið er áhugavert og sagan er í senn glæpa- og spennusaga, sálfræðitryllir, fjölskyldudrama og íslensk samfélagslýsing á seinni hluta síðustu aldar. Höfundur sáir fjölda efasemda í hug lesanda þannig að hann grunar allt og alla söguna á enda.“
  • ​Skúli Sigurðsson fyrir Maðurinn frá São Paulo sem Drápa gefur út. „Nýstárleg saga þar sem sögulegum atburðum og raunverulegum persónum úr mesta hildarleik sögunnar er fléttað saman við íslenskt samfélag á 8. áratug siðustu aldar. Höfundur vandar vel til verka og sagan hefur yfir sér trúverðugan blæ þrátt fyrir að atburðarásin sé framandi. Spennandi og grípandi frásögn, sem lesandinn getur vart lagt frá sér fyrr en ráðgátan leysist.“
  • ​Arnaldur Indriðason fyrir Sæluríkið sem Vaka Helgafell gefur út.  „Firnagóð flétta þar sem þræðir spillingar við úrlausn gamals morðmáls vefast saman við tortryggni kaldastríðsáranna og manndráps í nútímanum. Umhverfis- og samfélagslýsingar áhrifaríkar og persónusköpun hreint afbragð.“

Dómnefnd skipuðu Kristján Sigurjónsson, formaður dómnefndar, Björn Ingi Óskarsson​​​​​​ og Mjöll Snæsdóttir.

Tilnefningar í flokki barna og ungmennabóka ​

​Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki barna- og ungmennabóka:

  • ​Gunnar Helgason og Rán Flygenring myndhöfundur fyrir Bannað að drepa sem Mál og menning gefur út.  „Stórkostlega fyndin, einlæg og átakanleg frásögn sem spilar á allan tilfinningaskalann. Sagan, sem tekur áreynslulaust á málefnum líðandi stundar, er skemmtilega myndlýst, auðlesin og persónusköpun höfundar einstök.“​
  • Sævar Helgi Bragason og Elías Rúni myndhöfundur fyrir Vísindalæsi – Hamfarir sem JPV útgáfa gefur út. „Hnyttin og fræðandi bók um áhrifamátt hamfara, svo sem tilurð tungls og jarðar, þróun súrefnis og örlög risaeðla. Einstaklega vel myndlýst frásögn sem hvetur til umhugsunar um örlög jarðarinnar og hvort við getum enn haft einhver áhrif.“
  • ​Hildur Knútsdóttir fyrir Hrím sem JPV útgáfa gefur út. „Vel skrifuð og heillandi þroskasaga sem fjallar um erfiða lífsbaráttu, hugrekki, ástina og trúna á sjálfan sig í heimi sem er svo nálægt okkur en samt svo fjarri. Höfundur býr til mjög trúverðugan hugarheim og tekst að halda lesandanum spenntum frá upphafi til enda.“
  • ​Arndís Þórarinsdóttir og Hulda Sigrún Bjarnadóttir fyrir Mömmuskipti sem Mál og menning gefur út.  „Frumleg saga sem fjallar á meinfyndinn en einlægan hátt um líf barna hinna svokölluðu áhrifavalda. Hvers virði er einkalífið? Er hægt að setja það upp í súlurit og kökur? Hve mikið ætlum við að láta snjalltækin stjórna lífi okkar?“
  • Embla Bachmann fyrir Stelpur stranglega bannaðar! sem Bókabeitan gefur út. „Einföld en áhrifarík saga sem fjallar á lipran hátt um flóknar tilfinningar. Dásamleg og djúp persónusköpun með skemmtilegum lýsingum sem hrífa lesandann með sér. Glæsileg frumraun höfundar.“

​Dómnefnd skipuðu Hjalti Freyr Magnússon, formaður dómnefndar, Ásgerður Júlíusdóttir og Hrönn Sigurðardóttir Erludóttir.

​Tilnefningar í flokki fræðibóka og rita almenns efnis

Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki fræðibóka og rita almenns efnis:

  • ​Þórður Helgason fyrir Alþýðuskáldin á Íslandi – Saga um átök sem Hið íslenska bókmenntafélag gefur út. „Tímamótaverk og mikill fróðleikur saman dreginn um efni sem hefur ekki mikið verið fjallað um til þessa. Vel skrifuð bók.“
  • ​Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir fyrir Ég verð aldrei ungfrú meðfærileg - Baráttusaga Guðrúnar Jónsdóttur sem Vaka Helgafell gefur út. „Áhrifarík bók þar sem Guðrún hlífir hvorki sjálfri sér né öðrum. Skrifuð af ástríðu fyrir efninu og fjallar um ævistarf konu í þágu kvenna.“
  • ​Elsa E. Guðjónsson og Lilja Árnadóttir fyrir Með verkum handanna – Íslenskur refilsaumur fyrri alda sem Þjóðminjasafn Íslands gefur út. „Glæsileg bók og ríkulega myndskreytt. Fallegt og veglegt rit sem vitnar um ríkt menningarstarf kvenna á fyrri tímum. Í bókinni er fjallað á greinargóðan hátt um þann stórbrotna menningararf sem klæðin eru.“
  • ​Haraldur Sigurðsson fyrir Samfélag eftir máli – Bæjarskipulag á Íslandi og fræðin um hið byggða umhverfi sem Sögufélag gefur út. „Glæsilegt verk þar sem höfundi tekst að fjalla um breytinguna úr sveit í borg á aðgengilegan og læsilegan hátt. Vandað yfirlitsverk um skipulagsmál.“
  • ​Guðmundur Magnússon fyrir Séra Friðrik og drengirnir hans – Saga æskulýðsleiðtoga sem Ugla útgáfa gefur út.  „Yfirgripsmikil bók sem byggir á ítarlegri rannsóknarvinnu og skoðun á viðamiklum skjala og bréfasöfnum. Höfundur lætur heimildirnar tala sínu máli og lætur lesanda eftir að draga ályktanir.“

​Dómnefnd skipuðu Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður dómnefndar,  ​​​​​​Bessý Jóhannsdóttir og Þorvaldur Sigurðsson.

​Tilnefningar í flokki skáldverka 

​Eftirfarandi höfundar eru tilnefndir í flokki skáldverka:

  • ​Steinunn Sigurðardóttir fyrir Ból sem Mál og menning gefur út.  „Margslungin, þétt og spennandi örlagasaga. Djúpri sorg og söknuði er lýst af einstakri næmni og listfengi. Persónusköpunin er einkar vel heppnuð og tengingu manns og náttúru gerð skil á athyglisverðan hátt. Ólgandi tilfinningar persóna eiga sér samhljóm í náttúruöflunum þegar sár leyndarmál koma í ljós.“
  • ​Auður Ava Ólafsdóttir fyrir  DJ Bambi sem Benedikt bókaútgáfa gefur út. „Áhrifamikil skáldsaga skrifuð af miklu næmi og innsæi. Höfundur veltir upp heimspekilegum tilvistarspurningum af mennsku og hlýju. Ljóðrænn textinn er hrífandi fallegur og kíminn. Persónurnar eru eftirminnilegar og smeygja sér inn í hjörtu lesenda. Leikandi létt, listræn og hugmyndarík saga um óvænt kraftaverk hversdagslífsins á línunni milli lífs og dauða.“
  • ​Bjarni M. Bjarnason fyrir Dúnstúlkan í þokunni sem Veröld gefur út. „Vel uppbyggð og fallega skrifuð söguleg skáldsaga. Höfundi tekst að skapa dulúð og heillandi heim þar sem allt getur gerst. Frumlegur söguþráður og skemmtileg tengsl við galdratrú fortíðarinnar og íslenskan þjóðsagnaarf. Persónur eru trúverðugar og sagan bæði áhrifamikil og eftirminnileg.“
  • Vilborg Davíðsdóttir fyrir Land næturinnar sem Mál og menning gefur út. „Vel skrifuð, þrælspennandi og áhugaverð bók. Heimildavinna skilar lifandi lýsingu á menningu, lífsháttum og ferðum fornmanna sem hrífur lesanda með sér. Vilborg sækir í íslenskan sagnabrunn og má segja að Land næturinnar sé kóróna á sérlega vönduðu höfundarverki undanfarna áratugi.“
  • Eiríkur Örn Norðdahl fyrir Náttúrulögmálin sem Mál og menning gefur út. „Söguleg skáldsaga, full af húmor og skrifuð af mikilli orðgnótt. Söguna einkennir rífandi frásagnargleði, listfengi í stíl og frumlegur söguþráður. Þrátt fyrir fjörið og léttleikann er hér tekist á við stórar heimspekilegar spurningar svo úr verður innhaldsríkt og eftirtektarvert skáldverk.“

​Dómnefnd skipuðu Steingerður Steinarsdóttir, formaður dómnefndar, Guðrún Birna Eiríksdóttir og Hlynur Páll Pálsson. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert