Katrínu líst ekkert á ofurdeildina

Blaðamaður greip tækifærið og spurði Katrínu Jakobsdóttur út í hennar …
Blaðamaður greip tækifærið og spurði Katrínu Jakobsdóttur út í hennar skoðun á ofurdeildinni margumræddu. Henni líst ekkert á áformin. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra líst ekkert á það að hópur nokkurra af stærstu knattspyrnufélögum Evrópu segi skilið við Meistaradeild Evrópu og stofni sína eigin ofurdeild. Katrín er mikill stuðningsmaður Liverpool, sem hyggst taka þátt í áformunum.

„Ég varð fyrir svo miklum vonbrigðum að sjá mitt lið í þessum hópi. Ég held jafnvel að þessi vegferð verði bara eitthvað sem þeir verði að ganga einir, þvert á lagið góða,“ segir hún í samtali við mbl.is.

Viðskiptasjónarmiðin komin yfir öll mörk

Katrín talar um að þetta sé birtingarmynd þess að aukin viðskiptasjónarmið hafi orðið sífellt meira áberandi í knattspyrnu yfir undanfarin ár.

„En þarna finnst mér þau komin yfir öll mörk. Mér finnst við algjörlega vera búin að missa sjónar á því fyrir hverja þessi lið eru að spila en það er auðvitað fyrir stuðningsmennina sem fylgja þeim í rauðan dauðann og standa með þeim í blíðu og stríðu. Þarna er verið að búa til lokaðan klúbb og koma í veg fyrir að liðin geti fikrað sig upp og mætt þessum stóru liðum,“ segir Katrín að lokum. 

Þá hafa nýlega borist fréttir þess efnis að ensku knattspyrnufélögin Manchester City og Chelsea hyggist ekki taka þátt í ofurdeildinni. Ásamt þeim koma AC Mil­an, Arsenal, Atlético Madrid, Barcelona, In­ter Mílanó, Ju­vent­us, Li­verpool, Manchester United, Real Madrid og Totten­ham öll að stofn­un deild­ar­inn­ar.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert