Aukinn styrkur svifryks

Svifryk í umferðinni.
Svifryk í umferðinni. mbl.is/​Hari

Styrkur svifryks fór hækkandi upp úr miðjum degi í dag. Klukkan 16 var klukkustundargildi svifryks við Grensásveg 179 míkrógrömm á rúmmetra, við Njörvasund/Sæbraut 209 míkrógrömm á rúmmetra og í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum 186 míkrógrömm á rúmmetra.

Ástæðan er sandfok frá söndunum á Suðurlandi, að því er segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.  

Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofunni er gert er ráð fyrir svipuðum veðuraðstæðum næsta sólarhringinn og því mögulegt að styrkur svifryks verði hár áfram af sömu orsökum.

Sólarhringsheilsuverndarmörkin fyrir svifryk eru 50 míkrógrömm á rúmmetra.

Hægt er að fylgjast með styrk svifryks og annarra mengandi efna á loftgæði.is. Þar má sjá kort yfir mælistaði í Reykjavík og annars staðar á landinu. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert