Liggur á gjörgæslu eftir eldsvoða

Landspítalinn.
Landspítalinn. mbl.is/Sigurður Bogi

Maðurinn sem var fluttur í lífshættu á Landspítalann eftir eldsvoða í Grafarvogi í nótt liggur á gjörgæslu.

Stór hluti hópsins sem var fluttur á slysadeild vegna eldsvoðanna tveggja í nótt hefur verið útskrifaður, að sögn Stefáns Hagalíns, upplýsingafulltrúa Landspítalans.

Alls voru tólf fluttir á sjúkrahús eftir að eldur kviknaði í íbúð á fjórðu hæð fjölbýlishúss í Grafarvogi og einbýlishúsi í Mosfellsbæ. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert