Fagnar kaupum ríkisins á Felli

Frá Jökulsárlóni.
Frá Jökulsárlóni. mbl.is/Rax / Ragnar Axelsson

Samtökin hvetja nýja ríkisstjórn til að taka þessa ákvörðun skrefi lengra og gera Jökulsárlón og Breiðamerkursand að hluta Vatnajökulsþjóðgarðs,“ segir í fréttatilkynningu frá Landvernd þar sem fagnað er ákvörðun ríkisstjórnarinnar um að kaupa jörðina Fell við Jökulsárlón. Með því hafi ríkisstjórnin stigið mikilvægt skref í náttúruvernd og gefið þjóðinni mjög viðeigandi gjöf á síðasta starfsdegi sínum.

Frétt mbl.is: Ríkið kaupir jörðina Fell

Rifjað er upp að aðalfundur Landverndar hafi árið 2015 skorað á stjórnvöld að vernda Jökulsárlón á Breiðamerkursandi og Breiðamerkursand í heild sinni. „Hvatt var til þess að svæðið yrði hluti af Vatnajökulsþjóðgarði. Þá sagði í ályktuninni að mikilvægt væri að stuðla að og veita fjármagni í rannsóknir á einstöku lífríki Jökulsárlóns, vakta og vernda sandana sem umlykja lónið og nærsvæði þess.“

Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, framkvæmdastjóri Landverndar.

Minnt er á að ólíkt öðrum íslenskum jökullónum sé Jökulsárlón kvikt af lífi og ráði þar einna mestu nálægðin við hafið. „Náttúrufarsaðstæður eru mjög sérstæðar og má vænta þess að þær endurspeglist í tegundasamsetningu lífvera og þróun vistkerfa, bæði í lóninu sjálfu og næsta nágrenni þess. Rannsóknir á þessu merkilega heimskautalífríki eru skammt á veg komnar og lónið því að mestu óplægður akur sem rannsóknavettvangur. Þá eru Jökulsárlón og Breiðamerkursandur með bestu stöðum til að rannsaka jökla og kelfingu þeirra, jöklasögu og landmótun jökla.“

Jökulsárlón sé enn fremur fjölmennasti ferðamannastaðurinn á landsbyggðinni á eftir Gullfossi, Geysi og Þjóðgarðinum á Þingvöllum. „Það hefur verið á náttúruminjaskrá frá árinu 1974. Með því að lónið og Breiðamerkursandur yrðu hluti af Vatnajökulsþjóðgarði væru komnar betri forsendur til þess að hafa þar landvörslu á heilsársgrundvelli, vernda og vakta svæðið og fræða og mennta gesti um einstaka náttúru þess.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert