Skora á þingið að ræða LÍN-frumvarpið

Lánasjóður íslenskra námsmanna.
Lánasjóður íslenskra námsmanna. mbl.is/Hjörtur

Stjórn Stúdentafélags Háskólans í Reykjavík (SFHR) skorar á Alþingi að ljúka fyrstu umræðu um frumvarp Illuga Gunnarssonar, mennta- og menningarmálaráðherra, um heildarendurskoðun á Lánasjóði íslenskra námsmanna. Brýnt sé að stúdentar geti komið sjónarmiðum sínum á framfæri við þingið yfir sumarið.

Eins og kunnugt er var frumvarp Illuga tekið af dagskrá þingsins í dag að kröfu stjórnarandstöðunnar. Þingið fer í sumarfrí á föstudag og kemur ekki saman aftur fyrr en um miðjan ágústmánuð.

Í tilkynningu frá SFHR segir að í framhaldi af 1. umræðu færi málið til þingnefndar og í umsagnarferli og yrði tekið aft­ur fyr­ir um miðjan ág­úst þegar þing kem­ur sam­an að nýju. Önnur umræða um málið færi vænt­an­lega fram þá og í fram­haldi sú þriðja eft­ir frek­ari um­fjöll­un í þingnefnd.

Ljóst sé að frumvarpið kann að hafa veruleg áhrif á hagsmuni allra stúdenta.

„Því er brýnt að stúdentum sé gefið tækifæri til þess að koma sjónarmiðum sínum á framfæri við Alþingi með formlegum hætti yfir sumarið. Frumvarpið er að mörgu leyti stórt skref í rétta átt, þó að það séu ýmis atriði sem má bæta, og SFHR telur sumarið vera tímann til þess að ræða þá vankanta sem á því eru,“ segir í tilkynningunni.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert